Hér fyrir neðan má sjá upplýsingar um akstur og opunartíma Strætó yfir páska 2026.
Höfuðborgarsvæðið Páskar 2026
Ekið er skv. sunnudagsáætlun alla rauða daga um páskana
- Skírdagur, 2. apríl
- Föstudagurinn langi, 3. apríl
- Páskadagur, 5. apríl
- Annar í páskum, 6. apríl
Næturstrætó gengur eins og vanalega páskahelgina.
Landsbyggðin Páskar 2026
- Skírdagur, 2. apríl Ekið samkvæmt sunnudagsáætlun
- Föstudagurinn langi, 3. apríl Ekið samkvæmt laugardagsáætlun
- Páskadagur, 5. apríl Ekið samkvæmt laugardagsáætlun
- Annar í páskum, 6. apríl Ekið samkvæmt sunnudagsáætlun
Leiðir 63, 64, 65 og 81 miða akstur við skóladagatal og verða því ekki í akstri yfir páskana frá 30. mars til 6. apríl.
Austfirðir:
Athugið að enginn akstur er þessa rauðu daga á leiðum á Austfjörðum: 91, 92, 93 og 96. (Athugið að leiðir 91 og 93 aka eins og venjulega á laugardeginum 4. apríl).
Leið 94 mun aka skv. föstudagsáætlun föstudaginn langa og skv. mánudagsáætlun annan í páskum en enginn akstur er á skrídag og páskadag.
Athugið að hægt er að sjá allar tímatöflur fyrir þessa daga á öllum leiðum undir tímatöflur.
Reykjanesbær – innanbæjarvagnar:
Enginn akstur yfir páskadaga.
Akureyri – innanbæjarvagnar:
Enginn akstur nema á leið A6 á Skírdag 2. apríl og annan í páskum 6. apríl, þá verður ekið skv. sunnudagsáætlun.
Þjónustuver Strætó Sími 540 2700
| Dagur | Opnunartími |
|---|---|
| Skírdagur, 2. apríl | 10:00 - 14:00 |
| Föstudagurinn langi, 3. apríl | 10:00 - 14:00 |
| Páskadagur, 5. apríl | 10:00 - 14:00 |
| Annar í páskur, 6. apríl | 10:00 - 14:00 |
Móttaka Strætó Hestháls 14
| Dagur | Opnunartími |
|---|---|
| Skírdagur, 2. apríl | Lokað |
| Föstudagurinn langi, 3. apríl | Lokað |
| Páskadagur, 5. apríl | Lokað |
| Annar í páskur, 6. apríl | Lokað |