Akstur Strætó verður með breyttu sniði í kringum Smáralind vegna tónleika Laufeyjar sem haldnir verða í Kórnum um helgina.

Vegna sætisferða tónleikagesta frá Smáralind fyrir tónleika verður biðstöðinni Smáralind lokað að sunnanverðu (Smáralindar megin) í almenna leiðakerfinu.

Nánari upplýsingar um fríar sætisferðir með strætó fyrir tónleikagesti ásamt aðgengi gesta að Kórnum má finna á síðu Senu.

Áhrif á leiðakerfið

  • Stoppistöð Smáralind að sunnanverðu (Smáralindar megin) verður lokuð frá kl.17:30-20:00 fyrir leiðir 2, 21, 24, 28 í austurátt.
  • Í staðinn geta farþegar nýtt sér þessar biðstöðvar í staðinn:
  • Leið 2
    • Dalsmára á leið 2
    • Leið 2 mun aka hjáleið um Arnarnesveg og niður Smárahvammsveg og mun vagninn stoppa á öllum biðstöðvum á hjáleið. Hjáleiðin er merkt með rauðu.

  • Leið 21
    • Dalsmára á leið 21
  • Leið 24
    • Dalsmára og Smáratorg á leið 24
  • Leið 28
    • Smáralind að norðanverðu á leið 28 þar sem farþegar geta enn notað stoppistöðina að norðanverðu
  • Sætisferðir munu ekki hafa áhrif á akstur eða biðstöðvar eftir tónleikana.

Akstur í Kórahverfinu óbreyttur

Akstur í Kórahverfi verður óbreyttur þrátt fyrir götulokanir, vögnum verður hleypt í gegn um lokanir. Það má þó búast við seinkunum vegna þessa. Akstur á leiðum 2 og 28 helst því óbreyttur og munu leiðirnar stoppa á sínum venjubundnu biðstöðum í hverfinu.