Hér fyrir má sjá upplýsingar um akstur og opnunartíma Strætó ásamt hjáleiðum vegna gatnalokana á sumardaginn fyrsta, fimmtudaginn 23. apríl 2026.
- Höfuðborgarsvæðið
- Ekið verður samkvæmt sunnudagsáætlun.
- Landsbyggðin
- Ekið verður samkvæmt laugardagsáætlun.
- Enginn akstur verður á leiðum 91 – 96 á Austfjörðum þennan dag.
Athugið að hægt er að sjá allar tímatöflur fyrir þennan dag á öllum leiðum undir tímatöflur.
Móttaka Strætó verður lokuð á sumardaginn fyrsta en þjónustuverið er opið frá kl. 10:00 – 14:00.
Miðbær Reykjavíkur
Vegna götulokana fara margar leiðir hjáleiðir en vagnar munu stöðva á öllum biðstöðvum sem eru á hjáleiðunum.
Leið 1
- Frá kl. 10:30-15:00. Í stað þess að aka Lækjargötu og Suðurgötu mun leiðin aka Sæbraut, Snorrabraut og Hringbraut til og frá HÍ og Skúlagötu.
- Frá kl. 10:30 – 13:30 er Gamla Hringbraut lokuð og ekur þá leiðin Hringbraut í staðinn.
Leið 2
- Frá kl. 10:30 -15:00. Í stað þess að aka Hverfisgötu, Vonarstræti og Suðurgötu mun leiðin aka Snorrabraut og Hringbraut til og frá HÍ.
Leið 3
- Frá kl. 10:30 -15:00. Í stað þess að aka Geirsgötu, Lækjargötu og Suðurgötu mun hún aka Ánanaust og Hringbraut.
- Frá kl. 10:30 – 13:30 er Gamla Hringbraut lokuð og ekur þá leiðin Hringbraut í staðinn.
Leið 5
- Frá kl. 10:30 – 13:30. Í stað þess að aka um Egilsgötu, Barónsstíg, Gömlu Hringbraut og Vatnsmýrarveg mun leiðin fara hjáleið um Snorrabraut og Hringbraut.
Leið 6
- Frá kl. 10: 30 -15:00. Í stað þess að aka um Snorrabraut, Hverfisgötu, Lækjargötu og Suðurgötu mun leiðin aka Hringbraut til og frá HÍ.
Leið 11
- Frá kl. 10:30 – 15:00. Í stað þess að aka um Snorrabraut, Hverfisgötu og Suðurgötu mun leiðin aka um Hringbraut.
Leið 12
- Frá kl. 10:30 -15:00. Í stað þess að aka um Hverfisgötu, Lækjargötu og Skothúsveg mun leiðin aka Snorrabraut og Hringbraut.
Leið 13
- Frá kl. 10:30 – 15:00. Í stað þess að aka um Snorrabraut, Hverfisgötu, Vonarstræti og Túngötu mun leiðin aka Snorrabraut og Hringbraut.
Leið 14
- Frá kl. 10:30 – 13:30. Í stað þess að aka um Hverfisgötu mun leiðin aka Snorrabraut, Hringbraut og Ánanaust.
- Frá kl. 13:30 – 15:00. Í stað þess að aka um Hverfisgötu mun leiðin aka Snorrabraut.
Leið 15
- Frá kl. 10:30 – 13:30. Í stað þess að aka um Gömlu Hringbraut, Barónsstíg og Bergþórugötu mun leiðin aka hjáleið um Snorrabraut og Hringbraut.
Lokaðar biðstöðvar verða:
Frá kl. 10:30-13:30:
- Heilsuverndarstöðin (5)
- Sjúkrahótel (5, 15)
- Gamla Hringbraut (1, 3, 5, 15)
- Mýrargata (3, 14)
Frá kl. 10:30 -15:00:
- Mýrargata (3)
- Snorrabraut (6)
- Skeggjagata (6, 11, 13)
- Laugavegur (6, 11, 13)
- Barónsstígur (2, 6, 11, 12, 13, 14)
- Bíó Paradís (2, 6, 11, 12, 13, 14)
- Þjóðleikhúsið (2, 6, 11, 12, 13, 14)
- Harpa (1)
- Lækjartorg A (1, 2, 3, 6, 11, 13)
- Lækjartorg B (12, 14)
- Lækjartorg C (1, 3, 14)
- MR (12)
- Hallargarðurinn (12)
- Ráðhúsið ( 1, 2, 3, 6, 11, 13)
- Landakot (13)
- Ásvallagata (13)
Hafnarfjörður
Ein ferð á leið 19 kl. 13:17 fer beint frá Firði um Reykjavíkurveg að Iðnskólanum og tímajafnar þar og sleppir því hringnum í Norðurbæ.
Biðstöðvar sem verða óvirkar í þessari einu ferð verða:
- Norðurbakki
- Sundhöll Hafnarfjarðar
- Skjólvangur
- Víðivangur
- Miðvangur
- Hjallabraut
Mosfellsbær
Mosfellsbæ milli kl. 12:50 og 13:35
Leið 15 – Í stað þess að aka Þverholt, Skeiðholt, Skólabraut og Háholt mun leiðin aka Vesturlandsveg og Langatanga.
Lokaðar biðstöðvar verða:
- Álfatangi
- Skeiðholt
- Varmárskóli
- Háholt