Höfuðborgarsvæðið
- Ekið samkvæmt sunnudagsáætlun.
Landsbyggðin
- Ekið samkvæmt laugardagsáætlun.
- Athugið að enginn akstur er þessa daga á leiðum 91, 92, 93, og 96.
- Leið 94 ekur skv. miðvikudagsáætlun.
Athugið að hægt er að sjá allar tímatöflur fyrir þessa daga á öllum leiðum undir tímatöflur.
Móttaka Strætó verður lokuð 17. júní en þjónustuverið er opið frá kl. 10:00 – 14:00.
Götulokanir munu hafa áhrif á akstur Strætó í miðborg Reykjavíkur og öðrum sveitarfélögum.
Mesta röskunin verður á akstri í kringum miðbæ Reykjavíkur vegna gatnalokana sem vara frá morgni til kvölds. Þá verða raskanir í öðrum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu um daginn.
Allar hjáleiðir verða settar undir stöðu ferða.