Fréttir
8. apríl 2026

Lokun Hvalfjarðarganga hefur áhrif á leiðir 50 og 59

Lokun Hvalfjarðarganga hefur áhrif á akstur tveggja leiða á landsbyggðinni, leiðir 50 og 59. Göngin eru lokuð frá 7. apríl til 29. maí frá kl. 21:30 til 06:00. Unnið er að endurnýjun á lýsingu í göngunum og er unnið frá sunnudegi til föstudags þannig að þetta hefur ekki áhrif á akstur á föstudögum og laugardögum.

Leið 50

Fella þarf niður síðustu ferðir á leið 50 mánudaga, þriðjudaga, miðvikudaga, fimmtudaga og sunnudaga vegna lokunar Hvalfjarðarganga.

Mánudaga – fimmtudaga

Ferðir sem falla niður:

  • 20:34 Borgarnes – Mjódd
  • 22:00 Borgarnes – Mjódd
  • 22:09 Mjódd – Borgarnes
  • 23:35 Mjódd – Akranes

Síðustu ferðir dagsins verða þá:

  • 18:50 Borgarnes – Mjódd
  • 19:15 Borgarnes – Akranes
  • 18:45 Mjódd – Borgarnes
  • 20:54 Mjódd – Borgarnes
  • 19:45 Akranes – Borgarnes

Sunnudagar

Ferðir sem falla niður:

  • 19:40 Borgarnes – Mjódd
  • 21:40 Akranes – Mjódd
  • 21:20 Mjódd – Borgarnes
  • 22:50 Mjódd – Akranes

Síðustu ferðir dagsins verða þá:

  • 15:10 Borgarnes – Mjódd
  • 17:10 Borgarnes – Mjódd
  • 16:50 Mjódd – Borgarnes
  • 18:50 Mjódd – Akranes

Leið 59

Flýta þarf brottförum um 75/80 mínútur á leið 59 á miðvikudögum og 10 mínútur á sunnudögum.

Áætlun breytist eftirfarandi:

Miðvikudagar

Brottför Borgarnes til Búðardals verður kl. 16:50 í stað 18:10.

Brottför Búðardalur til Borgarness verður kl. 18:05 í stað 19:20.

Farþegar á leið til Reykjavíkur mun skipta yfir í leið 57 í stað leiðar 50. Leið 57 fer frá Borgarnesi. kl. 19:16.

Sunnudagar

Brottför Borgarnes til Hólmavíkur verður 14:50 í stað 15:00

Brottför Hólmavík til Borgarness verður 17:03 í stað 17:13

Farþegar á leið til Reykjavíkur munu skipta yfir í leið 57 í stað leiðar 50. Leið 57 fer frá Borgarnesi kl. 19:30.