Vegna nemakorta
Unnið er hörðum höndum að undirbúningi vegna sölu nemakorta skólaárið 2009-2010. Þess er að vænta að opnað verði fyrir umsóknir um nemakort á vefsíðu Strætó bs. þann 20. eða 21. ágúst 2009.
Kortin verða ekki gjaldfrí í ár, líkt og verið hefur undanfarin 2 ár, en verulegur afsláttur verður þó veittur miðað við almenn fargjöld. Boðið verður upp á tvær tegundir af kortum til að byrja með.
-
Haustkort, sem er ætlað þeim nemum sem einungis vilja haustannarkort. Verð á þessu korti er 8.000 kr. og er gildistíminn til 31. desember 2009.
-
Vetrarkort, sem er ætlað þeim nemum sem vilja fá kort sem gildir allt skólaárið. Verð á þessu korti er 15.000 kr. og gildistíminn er til 1. júní 2010.
Við vekjum athygli á að ef þú getur ekki sótt um nemakort þegar opnað hefur verið fyrir umsóknir, er það líklega vegna þess að við höfum ekki móttekið lista með kennitölunni frá viðurkenndum framhaldsskóla eða að viðkomandi eigi ekki lögheimili á höfuðborgarsvæðinu.
Við biðjum nemendur að kynna sér skilmála kortanna vel.
