klukkan er 09:08


Fréttir

Leiðakerfisbreytingar

17.8.2009

Breytingar á strætóleiðum frá og með 23. ágúst 2009:

Leiðakerfi Strætó bs. fer á  vetraráætlun þann 23. ágúst n.k. og mun tíðnin þá aukast aftur á nokkrum leiðum, líkt og var síðasta vetur.

Leiðar 1 og 6 munu aka á 15 mínútna fresti frá kl. 6:30 til kl. 18:00 á virkum dögum.

Leiðar 2, 3, 4, 11, 12, 14 og 15 munu aka á 15 mínútna fresti á annatíma (6:30 – 9:00 og 14:00 – 18:00) á virkum dögum.


Leiðabókina er hægt að kaupa á næstu sölustað eða niðurhala hér. (Athugið!! Stórt niðurhal)


Auk þess breytast nokkrar leiðar og er þess getið nánar hér að neðan:

Leið 18:

Aksturinn breytist þannig að ekki verður ekið frá Spöng. Leiðin ekur hefðbundna leið frá Hlemmi að Ártúni. Tímasetningin í Ártúni passar við leiðar 5, 6 og 15 í Ártúni í báðar áttir á dagtíma og við leiðar 5 og 6 á kvöldin og um helgar. Frá Ártúni verður ekið eftir Vesturlandsvegi að Lambhagavegi (hringtorgið við Bauhaus). Ekið verður að öðru hringtorgi við Mímisbrunn og ekið eftir Lambhagavegi aftur að Reynisvatnsvegi. Síðan verður „hefðbundinn“ hringur ekinn í Grafarholtinu, en ný endastöð kemur á Vínlandsleið fyrir framan Húsasmiðjuna. Ekið verður sömu leið aftur að Hlemmi. Farþegar í Grafarholti verða því að taka strætisvagninn „öfugu“ megin við veginn miðað við það sem verið hefur.

Leið 19:

Leið 19 mun þjónusta Hálsahverfið í framtíðinni. Eftir að komið er frá Streng verður ekið niður Bitruháls, eftir Grjóthálsi og upp Hálsabraut og Bæjarbraut að Rofabæ. Ekið er sömu leið í átt að bænum.

Leið 21:

Leið 21 hættir akstri eftir kl. 19 á kvöldin, á virkum dögum. Á laugardögum verður ekið á milli kl. 12 og 19. Enginn akstur verður á sunnudögum.

Leið 22:

Leiðin hættir að þjónusta iðnaðarhverfið í „Hrauninu“ eftir kl. 19 á kvöldin, á virkum dögum. Á laugardögum verður ekið í iðnaðarhverfið á milli kl. 12 og 19. Enginn akstur verður í hverfið á sunnudögum. Í staðinn mun leið 22 aka eftir Álfaskeiðinu þegar komið verður frá Helluhrauni. Frá Álfaskeiði verður ekið fram hjá Sólvangi og eftir Lækjargötu að Firði.

Leið 24:

Leið 24 mun aka framhjá „Húsahverfinu“ í Grafarvogi í framtíðinni. Ekið verður frá Fjallkonuvegi eftir Gagnvegi, Víkurvegi og Borgavegi að Spöng. Frá Spöng verður sama leið ekin, þ.e. Borgavegur, Víkurvegur, Gagnvegur og Fjallkonuvegur.

Leið 26:

Leið 26 er ný leið sem tengir Grafarholtið við Grafarvog og Árbæ. Leiðin ekur á 60 mínútna fresti á dagtíma, á virkum dögum. Akstursleiðin er frá Spöng eftir Borgavegi, Víkurvegi, Reynisvatnsvegi, Lambhagavegi, Mímisbrunni, Lambhagavegi og Reynisvatnsvegi. Héðan verður ekið eins og leið 18 gerði að Rofabæ í Árbæ. Leiðin mun þó aka að Árbæjarskóla og þaðan eftir Fylkisvegi, Hraunsás og þaðan í Rofabæ aftur og síðan sömu leið að Spöng.

Leið 51:

Sveitarfélögin Árborg og Hveragerði fækka ferðum á leið 51 fimm daga vikunnar. Ferðin frá Selfossi kl. 21:55 og frá Mjódd kl. 23:00 munu einungis verða eknar á föstudögum og laugardögum.

Leið 57:

Akraneskaupstaður skerðir ferðir milli Akraness og Háholts. Á virkum dögum fækkar ferðum um tvær, á laugardögum um tvær og engar ferðir verða á sunnu- og helgidögum. Þar sem leið 58 hættir akstri verður biðstöðin við Hvalfjarðargöng lögð niður.

Leið 58:

Sveitarfélögin í Hvalfjarðarsveit og Borgarbyggð hafa ákveðið að hætta akstri á leið 58. Ákvörðunin kemur til framkvæmda þann 23. ágúst 2009 og leggst þá akstur um Hvalfjarðarsveit og Borgarnes niður.


Senda grein


Þjónustusími strætó 540 2700
Þetta vefsvæði byggir á Eplica