Breyting á leið 19
Leið 19 breytist frá og með þriðjudeginum 6. apríl milli Hlemms og Nauthólsvíkur. Leiðin ekur frá þeim tíma sömu leið og leið 16 milli Nauthóls og Hlemms. Ekið verður því eftir hinum nýja Nauthólsvegi og þvert yfir Hringbraut við BSÍ yfir á Gömlu Hringbraut þar sem báðar leiðarnar tengjast stórum hluta leiðakerfisins á biðstöðinni við Landspítalann.
Tímatafla fyrir leið 19 verður að öðru leyti óbreytt.
