Ársfundur Strætó verður haldinn fimmtudaginn 2. maí. Fundurinn hefst kl. 15:00 og verður í safnaðarheimilinu Borgum, Kópavogi.

Fundarstjóri er Jakob Birgisson, betur þekktur sem grínistinn Meistari Jakob. Farið verður yfir það helsta í starfi Strætó frá árinu 2023 ásamt ársreikningi og auk þess verða erindi sem snúa að almenningssamgöngum. Nánari dagskrá verður kynnt síðar.

Allir eru velkomnir á fundinn og hvetjum við sérstaklega Strætónotendur sem hafa tök á til að koma og kynna sér málin.

Léttar veitingar verða í boði.