klukkan er 07:41


Fréttir

Frábær árangur í ökuleikni

2.9.2010

 

Norðurlandamót strætisvagnabílstjóra í ökuleikni fór fram um síðustu helgi og náðu okkar keppendur öðru sæti í keppninni í ár, sem er frábær árangur. Það voru Svíar sem fóru með sigur af hólmi með u.þ.b. 13.000 refsistig, Íslendingar enduðu með 13.600 refsistig, Finnar voru í þriðja sæti með u.þ.b. 15.000 refsistig og Norðmenn ráku lestina með um 16.000 refsistig. Danir taka ekki formlega þátt í Norðurlandamótinu.

Sex keppendur eru í hverju liði og ekur hver keppandi brautina tvisvar. Mælt er bæði hversu fljótir keppendur eru að aka í gegnum þrautirnar og eins hversu margar villur þeir gera í akstrinum. Auk keppni milli landa er jafnframt keppt í árangri einstaklinga og þar var Timo Kettunen frá Finnlandi hlutskarpastur, en hann hefur í áraraðir verið ofarlega á blaði á Norðurlandamótunum. Efstur Íslendinga að þessu sinni var Þórarinn Söebech sem endaði í fjórða sæti vagnstjóra. Næsti Íslendingur, Sigurjón Guðnason, kom fast á hæla honum í fimmta sæti, Andrés Bergsson var í áttunda, Steindór Steinþórsson var í tíunda, Björg Guðmundsdóttir var í 12. sæti og Róbert Daði Helgason í 19. sæti.

Keppnin fór fram í Finnlandi að þessu sinni. Nokkra athygli vakti að Finnar skyldu ekki ná hærra en í þriðja sæti, því þeir hafa verið mjög sterkir á heimavelli. Árangur okkar fólks var í takt við góðan árangur íslenskra strætisvagnabílstjóra síðustu ár, en Ísland hefur verið í fyrsta eða öðru sæti í flestum keppnum undanfarinn áratug. Næst fer keppnin fram í Svíþjóð 2011 og stefnir íslenska liðið að sjálfsögðu að því að ná titlinum af Norðurlandameisturunum á þeirra heimavelli.

 

 okuleikni-finnland

 

Mynd: Íslensku keppendurnir ásamt starfsmönnum liðsins taka við silfurverðlaununum. Frá vinstri, Andrés Bergsson, Sigurjón Guðnason, Kristján Kjartansson, Hörður Tómasson liðsstjóri, Þórarinn Söebech, Steindór Steinþórsson, Róbert Daði Helgason og Björg Guðmundsdóttir.

 

Stjórnendur Strætó bs. óska íslensku keppendunum til hamingju með frábæran árangur. Það er Strætó bs. mikils virði að sjá hversu framarlega íslenskir strætisvagnabílstjórar eru í keppni þeirra bestu á Norðurlöndunum. Og umfram allt vonum við að þessi árangur verði hvatning til okkar allra að aka af lipurð, færni og umfram allt öryggi á hverjum degi!

Senda grein


Þjónustusími strætó 540 2700
Þetta vefsvæði byggir á Eplica