Um 80.000 farþegar á Menningarnótt
Um 80.000 farþegar tóku strætó á Menningarnótt, sem er með því mesta sem almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu hafa flutt á einum degi frá upphafi. Sérstakt átak var gert að þessu sinni til að hvetja almenning til að taka strætó og var m.a. boðið frítt í strætó allan daginn og ferðum fjölgað. Margir svöruðu kallinu og nýttu sér strætó til að ferðast til og frá miðbænum, sem þýddi að álag var minna á götur og bílastæði borgarinnar.
Akstur strætó um daginn og kvöldið gekk heilt yfir mjög vel og vilja stjórnendur og starfsfólk Strætó bs. nota tækifærið og þakka almenningi fyrir samveruna og samfylgdina á meðan á Menningarnótt stóð. Eftir því var tekið hjá bílstjórum og starfsfólki hve jákvæðir farþegar voru og duglegir við að nýta sér þjónustuna allan daginn. Greiðlega gekk að anna eftirspurn á mesta álagspunktinum eftir flugeldasýninguna en eins og gefur að skilja er álagið mikið á strætókerfið og umferðina þegar tugþúsundir manna stefna úr miðborginni á sama tíma.
Um leið vilja stjórnendur Strætó bs. koma á framfæri þakklæti við starfsfólk sitt og verktaka Strætó bs., sem svaraði kallinu á annasamasta degi ársins og stóð sig með prýði. Allir tiltækir strætisvagnar voru í notkun samtímis þegar mest var og allir starfsmenn sem komust til vinnu þennan dag voru kvaddir til svo hægt væri að anna eftirspurninni.
„Ég er stoltur af starfsfólki Strætó bs. og starfsfólki verktaka okkar sem gekk í þetta mikla verkefni með bros á vör og mikla þjónustulund við krefjandi aðstæður. Að auki eiga farþegar hrós skilið fyrir að nýta sér þjónustuna og eiga þar með sinn þátt í að draga úr álaginu og umferðarþunganum sem oft myndast á Menningarnótt. Eins og gefur að skilja koma alltaf upp atvik eða aðstæður sem betur hefðu mátt fara þegar álagið á kerfið verður jafn mikið og það var á laugardaginn, en allt slíkt er skráð og notað til að gera enn betur í framtíðinni. Við viljum ávallt gera betur og ef farþegar hafa ábendingar um þjónustuna á Menningarnótt tökum við fúslega við þeim,“ segir Reynir Jónsson, framkvæmdastjóri Strætó bs.
