Fréttir
Vetraráætlun tekur gildi 22. ágúst
Vetraráætlun Strætó bs. tekur gildi sunnudaginn 22. ágúst. Tíðni ferða eykst á flestum leiðum og verður svipuð og tíðkaðist síðasta vetur.
Leiðir 1 og 6 munu aka á 15 mínútna fresti frá kl. 6:30 til kl. 18:00 á virkum dögum.
Leiðir 2, 3, 4, 11, 12, 14 og 15 munu aka á 15 mínútna fresti á annatíma (6:30 – 9:00 og 14:00 – 18:00) á virkum dögum.
Helstu aðrar breytingar:
- Leið 6 - breytingar: leið 6 mun tengja flest hverfi Grafarvogs betur og fer um Borga- og Staðahverfi á 15 mínútna fresti á virkum dögum en á 30 mínútna fresti á kvöldin og um helgar. Auk þess fer leið 6 um Grafarholt og tengir það við nánast allt frístundastarf í Grafarvogi. Hægt er að skoða nýju akstursleiðina á korti undir flipanum Vetraráætlun 2010 - 2011, hér ofar á síðunni. Leið 26 mun áfram veita sömu þjónustu í Grafarvogi og Grafarholti og síðasta vetur.
- Leiðir 31 og 32: munu hætta akstri frá og með gildistöku vetraráætlunar.
Nánari upplýsingar um vetraráætlun eru aðgengilegar undir flipanum "Vetraráætlun 2010-11" hér ofar, í Leiðavísi og í nýjum leiðabókum sem verið er að dreifa til sölustaða. Nýja leiðabókin kostar aðeins 50 krónur.
