klukkan er 08:30


Fréttir

Ný stjórn Strætó bs.

5.7.2010

 

Ný stjórn Strætó bs. kom saman á fundi í dag og skipti með sér verkum. Formaður stjórnar  verður Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, bæjarfulltrúi í Hafnarfirði. Aðrir í stjórn eru eftirtaldir: Kjartan Örn Sigurðsson frá Álftanesi, Stefán Snær Konráðsson frá Garðabæ, Hjálmar Hjálmarsson frá Kópavogi, Hafsteinn Pálsson frá Mosfellsbæ, Einar Örn Benediktsson frá Reykjavík og Sigrún Edda Jónsdóttir frá Seltjarnarnesbæ.

GudrunAgusta

Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir

Stjórn byggðasamlagsins er skipuð einum fulltrúa og einum til vara frá hverju aðildarsveitarfélagi. Fulltrúinn skal vera aðalmaður í sveitarstjórn eða framkvæmdastjóri viðkomandi sveitarfélags. Sömu skilyrði gilda um varamenn sem hver sveitarstjórn tilnefnir. Stjórnin skiptir sjálf með sér verkum og skal formennska skiptast milli aðildarsveitarfélaganna. Kjörtímabil stjórnar er tvö ár og mun því núverandi stjórn sitja til vors 2012.

Senda grein


Þjónustusími strætó 540 2700
Þetta vefsvæði byggir á Eplica