klukkan er 08:15


Fréttir

Akstur Strætó þann 17. júní

15.6.2010

Allar leiðir Strætó bs. munu aka samkvæmt laugardagsáætlun fimmtudaginn 17. júní. Á leiðum 1, 2, 3, 4, 5, 6, 11, 12, 13, 14, 15, 18, 19 og 28 mun hálftíma tíðnin halda áfram eftir kvöldmat og munu vagnar á þeim leiðum aka lengur en hefðbundið er samkvæmt áætlun. Síðustu ferðir frá Hlemmi og miðbænum verða fljótlega eftir miðnætti.  

Biðstöðvar á svæðum þar sem akstur verður bannaður verða merktar óvirkar. Tímabundin biðstöð verður sett upp við Geirsgötu, gegnt Kalkofnsvegi.  

Meðfylgjandi kort sýnir akstursleiðir um miðbæinn, sjá hér. Til nánari skýringa er rétt að ítreka eftirfarandi atriði varðandi þær akstursleiðir sem breytast vegna lokana. 

Akstursleiðir að og frá Hlemmi og miðbæ:

Kl.07:00 til kl.18:00 

Leiðir 1,3, 6, 11, 12 og 13 sem aka frá Hlemmi í vestur: Snorrabraut – Sæbraut – Geirsgata – Mýrargata – Ánanaust - Hringbraut. 

Að Hlemmi aka sömu leiðir:  Hringbraut  - Ánanaust – Mýrargata - Ægisgata – Geirsgata – Sæbraut - Snorrabraut.

 Leið 14 ekur að og frá Granda um eftirtaldar götur: Ánanaust, Hringbraut, Snorrabraut, Hlemmur.

 

Kl. 18:00 til kl. 00:30

Leiðir 1,3, 6, 11, 12, 13 og 14 aka frá Hlemmi suður Snorrabraut - Hringbraut - Sóleyjargötu - Fríkirkjuveg – Vonarstræti – Suðurgötu.

Að Hlemmi aka sömu leiðir Hringbraut - Suðurgötu – Skothúsveg - Sóleyjargötu -  Hringbraut -  Snorrabraut. .

Senda grein


Þjónustusími strætó 540 2700
Þetta vefsvæði byggir á Eplica