Fjölmenni á stórri strætóráðstefnu
Hátt á þriðja hundrað manns situr nú á stórri ráðstefnu norrænna almenningssamgöngufyrirtækja á Hilton Reykjavík Nordica. Strætó bs. er gestgjafi ráðstefnunnar og þar er því fagnað að eldgos og öskufall hafi ekki teljandi áhrif á aðsókn.
Rætt er um strauma og stefnur í almenningssamgöngum frá pólitískum sjónarhóli. Þá verða rekstrarleg viðfangsefni eins og markaðsmál, útboðsmál, þjónustuviðmót og upplýsingagjöf til viðskiptavina ofarlega á baugi.
Hér er í raun um að ræða tvær ráðstefnur sem slegið er saman í eina. Á ráðstefnunni Nordisk lokaltrafik sem haldin er annað hvert ár, til skiptis á Norðurlöndunum fimm, er fjallað um almenningssamgöngur í nútíð og framtíð. Þátttakendur á ráðstefnunni koma víða að, þar eru m.a. stjórnendur og starfsmenn almenningssamgöngufyrirtækja á Norðurlöndunum, akstursaðilar, pólitískt kjörnir fulltrúar sveitarfélaga og eftirlitsaðilar með þjónustunni. Á hinni ráðstefnunni, InformNorden, sem haldin er árlega, er fjallað um notkun og hagnýtingu upplýsingatækni í almenningssamgöngum.
Að sögn Harðar Gíslasonar, aðstoðarframkvæmdastjóra Strætó bs., er mjög gagnlegt fyrir Strætó bs. að taka þátt í þessu samstarfi við skyld fyrirtæki á öðrum Norðurlöndum. „Það er almennt viðurkennt að almenningssamgöngur á Norðurlöndum eru með þeim bestu í heiminum – og því er það fengur fyrir okkur að fá þennan góða hóp hingað til skrafs og ráðagerða. Hingað koma ennfremur fræðimenn og ráðgjafar sem greina frá nýjustu rannsóknum á þessu sviði,“ segir Hörður.
Samhliða ráðstefnunni er haldin sýning á búnaði sem tengist almenningssamgöngum. Stærstu framleiðendur upplýsingakerfa og annars búnaðar sem þarf til þjónustunnar koma og kynna búnað sinn og þjónustu. „Þetta eru sex stærstu fyrirtækin í þessum geira í Norður-Evrópu sem sýna margþætta nútímatækni sem auðveldar farþegum not af þjónustunni. Þróunin í tækni á þessu sviði er ör og þar mun farsíminn koma til með að gegna meginhlutverki,“ segir Hörður. Þar nefnir hann sem dæmi greiðslukerfi sem auðveldar aðgengi að þjónustunni, svokallaðar rauntímaupplýsingar sem felast í því að farþegir geti t.d. sótt í farsíma sínum upplýsingar um hvar næsti vagn er staddur og þróun aðferða við að auðvelda farþegum að velja hagkvæmustu leið í þjónustunni.
