Forkeppni fyrir norrænu ökuleiknina
Sex vagnstjórar hjá Strætó bs. hafa tryggt sér þátttökurétt í liðinu sem keppir fyrir hönd Strætó í hinni árlegu ökuleiknikeppni norrænna vagnstjóra í Helsinki 28. ágúst nk. Tólf tóku þátt í forkeppni sem fram fór laugardaginn 8. maí á planinu hjá Strætó að Hesthálsi 14.
Forkeppnin samanstóð af níu mismunandi þrautum á borð við að keyra á milli keilna án þess að snerta þær, snerta litlar túður í römmum og leggja vagninum þétt upp við línu.
Eftirtaldir verða í liðinu sem fer til Helsinki: Sigurjón Guðnason, Steindór Steinþórsson, Þórarinn Söebech, Róbert Daði Helgason, Björg Guðmundsdóttir og Andrés Bergur Bergsson. Flest eru þau reynsluboltar sem hafa keppt árum saman en einn nýliði bættist í hópinn að þessu sinni; Andrés Bergur.
Vagnstjórar hjá Strætó bs. og áður SVR hafa tekið þátt í norrænu ökuleiknikeppninni allt frá árinu 1983 og hafa margsinnis farið með sigur af hólmi. Að sögn Steindórs Steinþórssonar, deildarstjóra akstursdeildar Strætó bs., sem jafnframt var í öðru sæti í forkeppninni, er markið sett hátt að þessu sinni og mikill hugur í liðinu.
