hvert viltu komast...
klukkan er 14:07


Fréttir

33% meira – einnig á gjaldsvæði 3 og 4

10.5.2010

 

Tilboðið um 33% lengri gildistíma á strætókortum sem keypt eru á vefnum Strætó.is nær nú einnig til gjaldsvæðis 3 og 4, þ.e. Akraness, Hveragerðis og Selfoss, en upphaflega var það aðeins í boði á gjaldsvæði 1, höfuðborgarsvæðinu.

Frá og með 19. apríl sl. hefur viðskiptavinum Strætó á höfuðborgarsvæðinu boðist að kaupa 30 daga kort sem gildir í 40 daga. Með því að kaupa 90 daga kort fást 120 dagar og sé keypt 9 mánaða kort gildir það í heilt ár.  Tilboðið á við um kort sem keypt eru á vefnum og stendur fram til 15. október nk. Nú hefur verið ákveðið að viðskiptavinir á gjaldsvæðum 3 og 4 njóti þess líka. Þeir viðskiptavinir á svæðum 3 og 4 sem hafa keypt kort á vefnum eftir 19. apríl geta fengið kortið sitt endurútgefið með 33% tilboðinu.

Smelltu hér til að hafa samband.

Strætó bs. leitast stöðugt við að bæta þjónustuna við farþega sína og liður í því er að gefa viðskiptavinum kost á hagkvæmum leiðum til að nýta strætó sem ódýran og umhverfisvænan ferðamáta. Tilboðið er fyrst og fremst sett fram til þess að fá fleiri til að nota strætó reglulega og koma til móts við þá sem nú leita leiða til að draga saman útgjöld heimilisins. Um leið er tilboðið hvatning til notenda strætó um að nýta Strætó.is til að kaupa kort, leita sér upplýsinga um leiðakerfið, áætlun vagnanna o.s.frv.

Smelltu hér til að kaupa kort.

Senda grein



Þjónustusími strætó 540 2700
Þetta vefsvæði byggir á Eplica