Sýning ungra listamanna í Grafarvogsstrætó
Í liðinni viku var haldin sýning á listaverkum barna úr öllum grunnskólum Grafarvogs á nokkuð óvenjulegum sýningarstað, nefnilega í þeim vögnum Strætó bs. sem aka um Grafarvoginn, þ.e. á leiðum 6, 24, 31 og 32.
Tilefnið var Barnamenningarhátíð í Reykjavík sem stóð yfir dagana 19.-25. apríl og voru myndirnar uppi í vögnunum alla þessa viku. Myndirnar eru af listaverkum og munum sem nemendur hafa unnið í list- og verkgreinum og var markmiðið að draga fram í dagsljósið það frábæra listræna og skapandi starf sem börn eru að vinna í skólunum í hverfinu. Um leið gáfu myndirnar strætóferðinni lit og líf – og var ekki að sjá annað en að farþegar, ungir jafnt sem eldri, væru ánægðir með þessa tilbreytingu. Verkefnisstjóri grunnskólasýningarinnar var Ingibjörg Hannesdóttir.


Þessar myndir voru meðal þeirra sem strætófarþegar í Grafarvogi gátu virt fyrir sér í síðustu viku.
