Aksturssamningar undirritaðir
Nýlega var skrifað undir nýja aksturssamninga sem taka munu gildi þann 22. ágúst 2010
Aksturssamningar við Hagvagna og Kynnisferðir voru undirritaðir 12. apríl sl. en þessi tvö fyrirtæki buðu lægst þegar akstur 35 strætisvagna fyrir Strætó bs. til fjögurra ára var boðinn út á dögunum. Tilboð voru opnuð 10. mars og bárust tilboð frá sjö aðilum. Stjórn Strætó bs. ákvað á fundi sínum þann 17. mars að ganga til samninga við tvo lægstbjóðendur – og nú hafa þeir samningar verið undirritaðir formlega.
„Strætó bs. lagði í útboð í skugga kreppunnar sem, eins og alþjóð veit, hefur valdið gríðarlegum hækkunum á öllum aðföngum okkar. Því er það ánægjuleg niðurstaða að við fáum hagstæð boð þrátt fyrir auknar kröfur um þjónustu og gæði,“ segir Reynir Jónsson, framkvæmdastjóri Strætó bs.
„Öllum aðalmarkmiðum útboðsins var náð og stjórnin gerði skynsamlega í því að setja aksturinn í útboð á þessum tímapunkti þrátt fyrir miklar efasemdaraddir um að slíkt væri heppilegt á þessum tíma,“ segir Jórunn Frímannsdóttir, formaður stjórnar Strætó bs.
Útboðið er eins og áður sagði til fjögurra ára og hefst akstur í lok ágúst 2010. Alls er um að ræða akstur 35 strætisvagna og 119 þúsund aksturstíma á ári hverju. Andvirði samningsins er 987 milljónir kr. á ári eða tæpir fjórir milljarðar.

Mynd: Frá undirritun aksturssamninganna : Hörður Gíslason, aðstoðarframkvæmdastjóri Strætó bs., Sveinn Matthíasson og Agnar Daníelsson, Kynnisferðum, Jórunn Frímannsdóttir, formaður stjórnar Strætó bs., Reynir Jónsson, framkvæmdastjóri Strætó bs., Gísli Friðjónsson og Hrafn Antonsson, Hagvögnum.
