klukkan er 08:43


Fréttir

33% meira á strætó.is

19.4.2010

 

Strætó bs. býður nú 33% lengri gildistíma á tímabilskortum sem keypt eru á vefnum Strætó.is og mun gera það næsta hálfa árið, eða fram til 15. október nk. Þannig munu 30 daga kort sem keypt eru á vefnum á þessu tímabili gilda í 40 daga, 90 daga kort í 120 daga og 9 mánaða kort í 12 mánuði. Tilboðið gildir á gjaldsvæði 1, þ.e. höfuðborgarsvæðinu.

Þetta er fyrst og fremst gert til þess að fá fleiri til að nota strætó reglulega og koma til móts við þá sem nú leita leiða til að draga saman útgjöld heimilisins. Um leið er þetta hvatning til notenda strætó um að nýta Strætó.is til að kaupa kort, leita sér upplýsinga um leiðakerfið, áætlun vagnanna o.s.frv.

Hægt að spara um 150.000 kr. á ári
Sá sem ferðast með strætó í stað einkabíls til og frá vinnu eða skóla (10 km) fimm daga vikunnar allt árið um kring getur þannig sparað sér enn hærri fjárhæð en áður með notkun strætó, eða um 150 þús. krónur á ári sé borinn saman kostnaður annars vegar við hvern ekinn km. einkabíls skv. útreikningum FÍB og hins vegar við 9 mánaða kort Strætó keypt á Netinu fyrir 15. október. Þessi sparnaður margfaldast ef notandinn nýtir tækifærið og selur einkabílinn. Nánari útskýringar á þessum útreikningi má sjá hér að neðan.

Umtalsverð fjölgun farþega fyrstu þrjá mánuði ársins
„Við finnum fyrir auknum áhuga hjá almenningi á að nýta sér strætó, því samkvæmt talningum fyrstu þrjá mánuði ársins hefur farþegum í strætó fjölgað umtalsvert miðað við sama tíma í fyrra. Við finnum einnig að margar fjölskyldur hyggjast leggja einum bíl auk þess sem fjölmargir vinnustaðir hafa markað sér þá umhverfisstefnu að bjóða starfsfólki sínu upp á niðurgreiddar og vistvænar almenningssamgöngur í stað þess að leggja dýrmætt land undir bílastæði. Með tilboðinu um 33% lengri gildistíma korta viljum við koma til móts við fólk, auðvelda því að stíga þessi skref og hvetja til aukinnar notkunar á almenningssamgöngum,“ segir Reynir Jónsson, framkvæmdastjóri Strætó bs.

Gjaldskrá Strætó bs. ekki hækkað í rúm þrjú ár
„Hafi fólk verið hikandi við að stíga skrefið til fulls gerir þetta ákvörðunina enn auðveldari. Um leið má geta þess að gjaldskrá Strætó bs. hefur ekki hækkað í rúm þrjú ár, eða síðan 1. janúar 2007, og því hafa fargjöldin í raun lækkað jafnt og þétt að raunvirði á þessu mikla verðbólguskeiði. Strætófargjöld hér á landi eru nú ódýrari en fargjöld í þeim löndum sem við miðum okkur jafnan við,“ segir Jórunn Frímannsdóttir, formaður stjórnar Strætó bs.

10.854 kr. sparnaður á mánuði
Sá sem ferðast með strætó til og frá vinnu eða skóla fimm daga vikunnar borgar fyrir það 11.200 kr. á mánuði ef hann kaupir staka miða í hvert sinn. Kaupi hann farmiðaspjöld myndi kostnaðurinn lækka í 9.090 kr. Kaupi hann hins vegar mánaðarkort myndi það venjulega kosta 5.600 kr. en næsta hálfa árið mun hann fá 40 daga á verði mánaðarkorts, svo þannig má reikna sig fram til þess að mánuðurinn kosti ekki nema 4.200 kr. Ef sami einstaklingur myndi hins vegar nota fjölskyldubílinn til að ferðast á milli heimilis og vinnu eða skóla myndi rekstrarkostnaðurinn vera 15.054 kr. á mánuði. Er þá miðað við meðalvegalengdina 5 km á milli heimilis og vinnustaðar, sem gerir 10 km akstur á dag, og útreikninga FÍB á rekstrarkostnaði bíla sem er 75,27 kr. á ekinn kílómetra. og. Þannig má segja að hægt sé að spara að jafnaði 10.854 kr. á mánuði með því að taka strætó í vinnuna í stað þess að nota einkabílinn.

Sparnadur_straeto1

150.148 kr. sparnaður á ári – eða 953.250 kr., sé bíllinn seldur
Ef keypt væri 9 mánaða kort sem gildir í 12 mánuði kostar það 30.500 kr. en væri einkabíllinn notaður í sömu erindagjörðum væri kostnaðurinn 180.648 kr., miðað við sömu forsendur og hér að ofan. Þá væri sparnaðurinn á ársgrundvelli orðinn 150.148 kr. Síðan má ganga skrefinu lengra í útreikningnum, eins og gert var í Fréttablaðinu 17. mars sl. (sjá úrklippuna hér að neðan), en þar kom fram að heildarrekstrarkostnaður fjölskyldubílsins á ári væri 983.750 kr. Sé bíllinn seldur og sá kostnaður þar með úr sögunni mætti fá út þá niðurstöðu að árlegur sparnaður við að ferðast með strætó væri  953.250 kr. – og munar um minna.  

Sparnadur_straeto2

 

Svona reiknaði Fréttablaðið út sparnaðinn við að ferðast með strætó í stað einkabílsins:

Straeto_Frbl170310

Frétt Fréttablaðsins 17. mars 2010

Smelltu hér til að kaupa kort á vef Strætó bs.

Senda grein


Þjónustusími strætó 540 2700
Þetta vefsvæði byggir á Eplica