hvert viltu komast...
klukkan er 14:00


Fréttir

Stefnt að umhverfisvottun

31.3.2010

 

Stjórn Strætó hefur samþykkt að hefja undirbúning að mótun umhverfis- og öryggisstefnu fyrir byggðasamlagið. Stefnt er að því að undirbúningsvinnu (að undangenginni umhverfisgreiningu og stefnumörkun) verði lokið eigi síðar en í júní 2010 og þá liggi fyrir fullmótuð og samþykkt umhverfis- og öryggisstefna.

Í beinu framhaldi af því er ráðgert að hafist verði handa við innleiðingu, og síðar vottun, umhverfisstjórnunarkerfisins skv. ISO 14001 staðli og að því stefnt að þeirri vinnu verði lokið innan tveggja ára. Líklegt má telja að Strætó bs. muni gera þær kröfur til núverandi og væntanlegra birgja að þeir komi sér upp samsvarandi umhverfisstjórnunarkerfi ásamt vottun.

Markmið þessarar vinnu er að stuðla að bættu umhverfi og öryggi fyrir starfsfólk og viðskiptavini Strætó bs. sem og alla íbúa höfuðborgarsvæðisins.

Senda grein



Þjónustusími strætó 540 2700
Þetta vefsvæði byggir á Eplica