hvert viltu komast...
klukkan er 14:06


Fréttir

Yfir 90% ánægð með Nemakortið

31.3.2010

Yfir 90% notenda Nemakorts Strætó eru ánægð eða mjög ánægð með Nemakortið og að jafnaði fara korthafar níu ferðir með strætó í viku hverri. Þetta kemur fram í nýrri könnun sem Viðskiptafræðistofnun Háskóla Íslands gerði meðal þeirra sem keypt hafa Nemakort frá haustinu 2009.

Rúm 48% telja að þau noti strætó oftar eða mun oftar nú en á sama tíma í fyrra og aðeins rúm 16% telja sig nota strætó sjaldnar eða mun sjaldnar. Tæp 34% telja að þau noti strætó oftar nú en í september 2009 en tæp 16% telja sig nota strætó sjaldnar eða mun sjaldnar. Um 62% korthafa telja að þjónustan falli vel eða mjög vel að þeirra þörfum og aðeins rúm 13% illa eða mjög illa.

Yfirgnæfandi meirihluti, tæp 85%, telur að Nemakortið hafi hvetjandi áhrif á notkun þeirra á þjónustunni en aðeins tæp 4% töldu ólíklegt eða mjög ólíklegt að kortið hefði hvetjandi áhrif á notkunina. Rúm 50% áforma að nota strætó næsta sumar eftir að kortið fellur úr gildi.

50 heppnir svarendur fengu vinning

Könnunin var gerð í tölvupósti og var svarhlutfallið um 45%. 50 heppnir svarendur voru dregnir út og fá þeir vinninga í viðurkenningarskyni fyrir þátttöku í könnuninni. 48 manns fengu bíómiða, einn fékk farsíma og einn iPod. Þeir hafa allir fengið tölvupóst frá Strætó, þar sem þeim er tilkynnt um vinningana og þeir beðnir að vitja þeirra á skrifstofu Strætó bs. í Mjódd.

vinningshafi_Sveinn

Sveinn Gauti Einarsson með vinninginn.

Sveinn Gauti Einarsson, verkfræðinemi við Háskóla Íslands, var sá fyrsti til að vitja vinnings síns, en hann var svo heppinn að fá iPod Nano.  Hann sagðist einmitt hafa verið að hugsa um það síðast daginn áður að það gæti nú verið gaman að eignast einn slíkan – svo hann var að vonum ánægður með vinninginn. Aðspurður sagðist hann nota strætó svo til daglega, til og frá skóla, en hann á heima í Garðabæ og ferðast með leið 1 þaðan og vestur í Háskóla. Ferðin tekur um 20 mínútur og þykir honum það vel sloppið. Þá segir hann aukaakreinina fyrir strætó á Miklubrautinni flýta mikið fyrir. Flestir sem hann þekki ferðist hins vegar á bílum til og frá skóla. Nú getur hann notið strætóferðarinnar enn betur með iPodinn í vasanum og góða tónlist í eyrunum. Hann sagðist ekki vera búinn að ákveða hvaða tónlist hann myndi byrja á að setja inn – en hann yrði ekki í vandræðum með það. „Ég hlusta á allt,“ sagði hann og gekk glaður út í vorveðrið með nýja iPodinn sinn.

Senda grein



Þjónustusími strætó 540 2700
Þetta vefsvæði byggir á Eplica