Aksturstilboð opnuð
Hagstæð boð þrátt fyrir auknar kröfur um þjónustu og gæði
Verðtilboð í akstur strætisvagna fyrir Strætó bs. voru opnuð 10. mars sl. Alls bárust tilboð frá sjö aðilum og ákvað stjórn Strætó bs. á fundi sínum þann 17. mars sl. að ganga til samninga við tvo lægstbjóðendur; Hagvagna og Kynnisferðir.
„Strætó bs. lagði í útboð í skugga kreppunnar sem, eins og alþjóð veit, hefur valdið gríðarlegum hækkunum á öllum aðföngum okkar. Því er það ánægjuleg niðurstaða að við fáum hagstæð boð þrátt fyrir auknar kröfur um þjónustu og gæði,“ segir Reynir Jónsson, framkvæmdastjóri Strætó bs.
„Öllum aðalmarkmiðum útboðsins var náð og stjórnin gerði skynsamlega í því að setja aksturinn í útboð á þessum tímapunkti þrátt fyrir miklar efasemdaraddir um að slíkt væri heppilegt á þessum tíma,“ segir Jórunn Frímannsdóttir, formaður stjórnar Strætó bs.
Útboðið er til fjögurra ára og hefst akstur í lok ágúst 2010. Alls er um að ræða akstur 35 strætisvagna og 119 þúsund aksturstíma á ári hverju. Andvirði samningsins er 987 milljónir kr. á ári eða tæpir fjórir milljarðar.
