klukkan er 08:44


Fréttir

Norrænir strætóforstjórar bera saman bækur sínar

26.3.2010

Dagana 14. og 15. mars sl. komu hingað til lands fulltrúar almenningssamgöngufyrirtækjanna í höfuðborgum Norðurlandanna. Á fundinum, sem haldinn er á hálfs árs fresti og til skiptis í höfuðborgunum fimm, ræða forstjórarnir ýmis mál sem fyrirtæki þeirra eiga sameiginleg, ásamt því að skiptast á upplýsingum og skoðunum, samræma og læra hverjir af öðrum. Í þetta sinnið voru farþegaupplýsingar, fyrirkomulag fargjaldasölu, þróun leiðakerfa, umhverfisvottun og upplýsingatækni hvað fyrirferðarmest.

Forstjorafundur

Þátttakendur f.v.:  Tore Kåss, Ruter; Reynir Jónsson, Strætó; Michael Skov, Movia; Ann-Sofie Chudi, SL; Ville Lehmuskoksi, HSL; Vibeke Harlem, Ruter; Bernt Reitan Jenssen, Ruter; Per Gellert, Movia; Matti Lahdenranta, HSL og Hörður Gíslason, Strætó.

 

„Þetta var mjög gagnlegur fundur fyrir okkur, því þrátt fyrir að þessi fyrirtæki séu mislangt á veg komin í þjónustu sinni eru þau verkefni og viðfangsefni sem þau glíma við af sama toga spunnin.  Við komum því aldrei að tómum kofanum hjá kollegum okkar og fáum mörg góð ráð og tengingar til að vinna með í framþróun okkar þjónustu,“ segir Reynir Jónsson, framkvæmdastjóri Strætó bs.

Fyrirtækin sem um ræðir eru Ruter í Ósló, Movia í Kaupmannahöfn, HSL í Helsinki, SL í Stokkhólmi og Strætó bs.

Senda grein


Þjónustusími strætó 540 2700
Þetta vefsvæði byggir á Eplica