Frítt í sund fyrir starfsfólk Strætó
Öllu starfsfólki Strætó bs. býðst nú að fara frítt í sund í Reykjavík, Hafnarfirði, Álftanesi, Garðabæ, Kópavogi og Mosfellsbæ, gegn framvísun starfsmannakorts. Fastir starfsmenn hafa um langt árabil fengið frítt í sund í Reykjavík en nú bætast við fimm nágrannasveitarfélög.
Tilboðið tengist stefnu um heilsueflingu starfsfólks sem er í vinnslu hjá fyrirtækinu. Stjórnendur Strætó bs. leggja mikla áherslu á að starfsmenn gæti að heilsunni og tileinki sér betra og heilbrigðara líferni. Í heilsueflingunni felst m.a. að starfsfólki býðst reglulega heilsufarsskoðun, árlega er boðið upp á inflúensubólusetningu, auðvelt aðgengi er tryggt að læknisþjónustu hjá Heilsuvernd, ókeypis aðgangur er fyrir alla starfsmenn að Doktor.is, heilsupistlar eru sendir reglulega til alls starfsfólks o.m.fl.
Ítarlegt áhættumat var framkvæmt hjá fyrirtækinu fyrir rúmu ári og í framhaldinu hefur verið unnið mjög markvisst að úrbótum þeirra þátta sem þörf var á. Fram komu rúmlega 150 athugasemdir og nú er hafin vinna við eða lokið úrlausn á um 75% þeirra. Eitt af því sem fram kom í áhættumatinu var að enn betur mætti gera í heilsueflingu og við því var brugðist með því að semja við fleiri sundstaði. „Heilsa starfsmanna hefur í gegnum árin verið mikils metin og áhersla lögð á hvatningu til heilsueflingar. Fjölgun ókeypis sundstaða er liður í þeirri vinnu og fleira er í bígerð í framtíðinni,“ segir Guðmundur Sigurjónsson, starfsmanna- og launafulltrúi, sem sá um að semja við nýju sundstaðina.
