Strætóforstjórar funda í Reykjavik
Forstjórar almenningssamgöngufyrirtækja í höfuðborgum Norðurlandanna funda í Reykjavík dagana 14.-15. mars nk. Á fundinum, sem haldinn er á hálfs árs fresti og til skiptis í höfuðborgunum fimm, ræða forstjórarnir ýmis mál sem fyrirtæki þeirra eiga sameiginleg, ásamt því að skiptast á upplýsingum og skoðunum.
Reynir Jónsson, framkvæmdastjóri Strætó bs., segir að það sé mikill ávinningur fólginn í því fyrir Strætó bs. að eiga þess kost að taka þátt í samstarfi þessara aðila, því viðfangsefnin og áskoranirnar séu jafnan af sama toga hjá fyrirtækjunum, þótt umfang og flækjustig sé mismunandi. Almenningssamgöngur á Norðurlöndunum eru almennt taldar í hæsta gæðaflokki og metnaður þeirra mikill. Af því getum við lært og bætt strætósamgöngur heima fyrir.
