hvert viltu komast...
klukkan er 22:28


Fréttir

Ánægja með SMS þjónustu Strætó

Almenn ánægja mælist meðal farþega á leiðum 51 og 57 með SMS þjónustu fyrirtækisins

4.3.2010

Frá vorinu 2009 hefur Strætó bs. boðið upp á þá þjónustu að senda  hópskilaboð (SMS) í farsíma viðtakenda ef ferðir falla niður á leiðum 51 og 57. Flestir notendur þjónustunnar eru búsettir á Vesturlandi, enda kemur það einna helst fyrir á því svæði að ferðir falli niður stöku sinnum sökum veðurs (vindhraða).

Nýlega var haft samband við alla notendur þjónustunnar, kannað hvernig hún mæltist fyrir og hvort einhverjir hnökrar hefðu verið á móttöku skilaboða.  Helstu niðurstöður könnunarinnar eru eftirfarandi: 

·           Rúmlega 70 manns eru skráðir í SMS þjónustu Strætó bs.

·           99,9% notendanna eru ánægðir eða mjög ánægðir með þjónustuna.

·           Þeir sem eru með símaþjónustu hjá Nova geta ekki nýtt sér þjónustuna af tæknilegum orsökum.  

 

Þeim sem vilja skrá sig í SMS-þjónustuna á leiðum 51 og 57 er bent á að hafa samband við Þjónustuver Strætó bs. í síma 540 2700. Þjónustuverið er opið virka daga kl. 6:30 – 22:00, laugardaga kl. 9:00 – 19:00 og sunnudaga kl. 11:30 – 19:00.

Rétt er að ítreka að þjónustan er eingöngu í boði á leiðum 51 og 57, að svo stöddu. 

Senda grein



Þjónustusími strætó 540 2700
Þetta vefsvæði byggir á Eplica