Strætó fær forvarnaviðurkenningu VÍS
Tjónum fækkaði úr 304 árið 2006 í 197 árið 2009
Strætó bs. fékk viðurkenningu fyrir góðan árangur í forvarnamálum á forvarnaráðstefnu VÍS og Vinnueftirlitsins sem haldin var 4. febrúar. Með markvissu átaki á síðastliðnum árum hefur Strætó bs. tekist að draga verulega úr tjónum og bæta til muna öryggi farþega sinna og starfsmanna.
Á ráðstefnunni töluðu fyrir hönd Strætó bs. þau Steindór Steinþórsson, deildarstjóri akstursdeildar, og Bergdís Eggertsdóttir verkefnastjóri. Þau sögðu frá atvikaskráningu, sem unnið hefur verið markvisst að hjá fyrirtækinu síðastliðið ár og sýndu fram á mælanlegan árangur skráningarinnar. Umtalsverðir fjármunir hafa sparast á síðastliðnum árum eftir að farið var að taka með markvissum hætti á forvarnamálum í góðu samstarfi við VÍS.
Fjöldi tjóna á árinu 2006 var 304, árið 2007 voru tjón 297, árið 2008 voru tjón komin í 268 og 2009 hrapaði tjónafjöldinn niður í 197, sem verður að teljast frábær árangur. „Þennan aðdáunarverða árangur í forvörnum má þakka samstilltu átaki allra okkar frábæru starfsmanna. Viðurkenningin frá VÍS er okkur mikilvæg hvatning til að halda áfram á þessari braut og gera enn betur,“ segir Reynir Jónsson, framkvæmdastjóri Strætó bs.
Hjá fyrirtækinu starfar öflug öryggisnefnd og umbótahópur, hvort tveggja skipað almennum starfsmönnum og stjórnendum fyrirtækisins. Öryggisnefndin hefur m.a. lokið vinnu við ítarlegt áhættumat alls fyrirtækisins. Búið er að ljúka úrlausnum 75,2% allra þeirra ábendinga sem starfsmenn komu á framfæri í matinu. Umbótahópurinn greinir áhættuþætti í umferðinni og gatnakerfinu og vinnur að úrbótum.
Með tilkomu atvikaskráningar eru upplýsingar um öll tjón og tjónaaðstæður kortlagðar á mun nákvæmari hátt en áður. Um leið gefast mun meiri möguleikar á áhættugreiningu og eftirfylgni til úrlausna. T.d. hefur atvikaskráningin vakið athygli öryggisnefndar og umbótahóps á ákveðnum stöðum þar sem mikill fjöldi tjóna á sér stað og ákveðnum aðstæðum sem ber að varast. Í framhaldinu hefur verið hægt að vinna markvissar með vagnstjórunum, bæði sem einstaklingum og hóp, að fækkun tjóna. Virk upplýsingamiðlun til starfsmanna og stjórnenda hefur leitt til þess að allir vinna saman að sameiginlegu markmiði, sem er meira öryggi fyrir starfsmennina og minni kostnaður fyrir fyrirtækið.
Auk Strætó bs. fékk bifreiðaverkstæðið Bílson viðurkenningu fyrir góðan árangur í forvarnamálum og Þörungaverksmiðjan fékk Forvarnaverðlaun VÍS 2010. Þetta er í fyrsta sinn sem forvarnaverðlaun og -viðurkenningar VÍS eru veitt.

Á myndinni eru Reynir Jónsson, framkvæmdastjóri Strætó bs., sem tók við viðurkenningunni fyrir hönd fyrirtækisins, og Guðmundur Örn Gunnarsson, forstjóri VÍS.
