klukkan er 11:16


Fréttir

Nemakort fyrir vorönn

8.12.2009

14. desember verður opnað fyrir umsóknir á námsmannakortum fyrir vorönn 2010. Verð á þessu korti er 8.000 kr. og er gildistíminn frá 1. janúar til 1. júní 2010.

Hægt er að sækja um nemakortin á vefsvæði Strætó bs. og greiða fyrir þau þar.

Byrjað verður svo að afgreiða kortin á milli jóla og nýárs.

Við vekjum athygli á að ef þú getur ekki sótt um nemakort þegar opnað hefur verið fyrir umsóknir, er það líklega vegna þess að við höfum ekki móttekið lista frá skólum með kennitölum námsmanna eða að viðkomandi á ekki lögheimili á höfuðborgarsvæðinu.

Við biðjum nemendur að kynna sér skilmála námsmannakorta vel.

Senda grein


Þjónustusími strætó 540 2700
Þetta vefsvæði byggir á Eplica