Breytt fyrirkomulag á leið 27 í Mosfellsdal
Frá og með 9. nóvember breytist akstur Strætó um Mosfellsdal. Farþegar Strætó í Mosfellsdal hringja í síma 5 88 55 22 með minnst klukkutíma fyrirvara. Hreyfill annast aksturinn og þar er síminn opinn allan sólarhringinn. Það er því um að gera að panta tímanlega til að vera viss um farið.
Ekið verður frá biðstöðvum Strætó eftir gildandi áætlun. Ekki þarf að greiða fyrir farið niður í Háholt og til baka.
Íbúar í Mosfellsdal eru hvattir til að nýta sér þessa nýstárlegu aðferð og hringja í Hreyfil á Strætó. Ekki er hægt að óska eftir að Strætó-Hreyfill fari leiðina á öðrum tíma en gert er ráð fyrir í áætlun. Munum líka að ef ekki er pantað þá er engin ferð.
Við hlökkum til að takast á við nýja tíma með nýjum lausnum ásamt íbúum í Mosfellsdal.
