Breytingar á akstri 21. október 2009
Vegna tenginga á umferðaljósum á gatnamótum Kringlumýrarbrautar / Borgartúns breytist akstur vagna á leiðum 4, 5 og 12 á eftirfarandi hátt.
Leið 4:
Leið 4 ekur um Laugaveg á leið að Hlemmi og eins þegar ekið er frá Hlemmi á leið í Hafnarfjörð.
(Biðstöðvar sem falla niður eru við Höfðatorg, Hótel Cabin og Tún.)
Leið 5:
Leið 5 ekur frá Hlemmi um Borgartún,Höfðatún og Sæbraut á leið í Árbæ / Norðlingabraut.
(Biðstöð sem fellur niður er við Hótel Cabin)
Þegar ekið er í átt að Hlemmi er ekið um Sæbraut, Kringlumýrarbraut og Borgartún.
Engin biðstöð fellur niður)
Leið 12:
Leið 12 ekur frá Hlemmi um Laugaveg, Nóatún, Borgartún í vestur og Höfðatún á Sæbraut á leið í Mjódd.
(Biðstöð sem fellur niður er við Hótel Cabin)
Þegar ekið er að Hlemmi er ekið um Sæbraut, Kringlumýrarbraut og Borgartún og Nóatún.
(Engin biðstöð fellur niður)
Ath. Lokað verður kl. 09:30 og eitthvað fram eftir degi miðvikudaginn 21. október 2009.
