Breytingar á leiðum 3 og 12
Á miðvikudagsmorgun, 14. október, klukkan 9.30 verður gatnamótum Breiðholtsbrautar, Jaðarsels og Suðurfells lokað fyrir allri umferð. Gert er ráð fyrir að lokunin vari fram eftir morgni föstudagsins 16. október.
Leið 3 fer á þessu tímabili EKKI um Fell og Berg í Breiðholtinu heldur snýr vagninn við hjá verslunarkjarnanum við Jaðarsel (Jafnasel), þar sem m.a. Krónan er til húsa, og ekur hefðbundna leið til baka að Mjódd.
Leið 12 mun EKKI aka um Seljabraut á þessu tímabili heldur fer hún frá Mjódd sem leið liggur upp Breiðholtsbraut og inn Suðurfell við Shell bensínstöðina. Vagninn fer síðan sömu leið til baka frá Suðurfelli að Mjódd.
Sérmerktir vagnar aka frá Mjódd, upp Seljabraut og sömu leið til baka, til að þjóna Seljabraut.
