Grunnskólakort auka færni barna í að nýta sér strætó
Stjórn Strætó bs. samþykkti í dag tillögu um útgáfu sérstakra grunnskólakorta, sem ætlað er að auðvelda nemendum grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu að fara í vettvangsferðir innan höfuðborgarsvæðisins og auka færni barna og unglinga í að nýta sér strætó. Grunnskólakortin eru sérstök hópakort sem gera kennurum og nemendum þeirra kleift að ferðast með strætó utan helstu annatíma.
Fjöldi korta verður mismunandi eftir skólum. Miðað er við að gefið verði út eitt kort á hver hundrað börn í hverjum skóla, þótt aldrei séu færri en tvö kort gefin út á hvern skóla. Gert er ráð fyrir að kortin verði komin í notkun hið fyrsta og munu þau gilda út skólaárið. Skólar fá kortin afhent gegn 5.000 króna skilagjaldi en gert er ráð fyrir að ný kort verði gefin út fyrir næsta skólaár.
Grunnskólakortin munu gilda milli kl. 9 og 15, þ.e. utan mestu annatíma strætó snemma á morgnana og síðdegis. Almennir farþegar munu ávallt njóta forgangs umfram hópa sem ferðast á grunnskólakorti. Ætli stórir hópar að ferðast með grunnskólakortum er þeim jafnframt skylt að gera starfsfólki Strætó viðvart með fyrirvara.
Tilgangur grunnskólakortanna er að auka strætónotkun barna og unglinga þannig að þau kynnist betur þessum samgöngumáta og læri að notfæra sér kosti strætó í daglegu lífi. Að auki munu grunnskólakortin létta undir með grunnskólum sem vilja auðga skólastarfið með styttri vettvangsferðum, til að mynda á söfn eða útivistarsvæði á höfuðborgarsvæðinu.
„Sveitarfélögin reka bæði grunnskólana og Strætó og því sáum við gott tækifæri til að láta þessar grunnþjónustueiningar vinna saman í beggja þágu. Það er von okkar í stjórn Strætó bs. að grunnskólakortin muni nýtast skólum á höfuðborgarsvæðinu til að gera skólastarfið fjölbreyttara um leið og við væntum við þess að unga fólkið okkar læri með þessu að nýta sér strætó sem ferðamáta til framtíðar,“ segir Jórunn Frímannsdóttir, stjórnarformaður Strætó bs.
