Fréttir
Nýr akstursaðili tekur við leið 51
Fimmtudaginn 1. október tekur SBA Norðurleið við akstri á leið 51 af Þingvallaleið. SBA Norðurleið vann útboð fyrir þessa leið fyrr í sumar.
Við bjóðum þá velkomna sem akstursaðila hjá Strætó bs. og þökkum um leið Þingvallaleið ánægjulegt samstarf.
Athygli farþega er vakin á að aðrir vagnar og þar með annað útlit vagna verður í akstri frá fimmtudeginum en að öðru leyti breytist þjónustan ekkert.
