klukkan er 07:57


Fréttir

Nemakort í boði  fyrir námsmenn allra sveitarfélaga sem standa að rekstri Strætó bs.

26.8.2009

Stjórn Strætó bs. vill koma á framfæri að öll sveitarfélögin sem standa að rekstri Strætó bs. bjóða sínum nemendum nemakort. Önnur sveitarfélög innan Strætó bs. en Reykjavík ákváðu strax í upphafi að vera með í þessu verkefni og þannig hefur nemaverkefnið frá upphafi verið sameiginlegt verkefni þeirra sjö sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu sem standa að rekstri Strætó bs.  Sveitarfélögin sem um ræðir eru: Reykjavík, Hafnarfjörður, Kópavogur, Garðabær, Mosfellsbær, Seltjarnarnes og Álftanes.

Nemakortið sem í boði er gildir fyrir alla nemendur sem hafa fasta búsetu (lögheimili) í einhverju hinna sjö sveitarfélaga og stunda nám í viðurkenndum skólum á framhalds- og háskólastigi sem staðsettir eru í sömu sveitarfélögum.  Nemakort eru því kostur fyrir alla þá nemendur sem falla undir framangreinda skilgreiningu.  Sú breyting verður þó í ár að nemendur bera hlutdeild í gjaldinu sem nemur 15.000 krónum yfir veturinn eða 8.000 krónur á önn.  Mismunur á fullu gjaldi og hlutdeild nemenda er greiddur af því sveitarfélagi sem viðkomandi nemandi hefur búsetu í.  Hægt er að sækja um Nemakortin á vefsvæði Strætó bs. – www.straeto.is og greiða fyrir þau þar.

Senda grein


Þjónustusími strætó 540 2700
Þetta vefsvæði byggir á Eplica