klukkan er 08:14


Fréttir

Vagnstjórar samþykkja nýjan kjarasamning

24.8.2009

Á fundi samninganefnda Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar og Strætó bs þann 17. ágúst var undirritað samkomulag um breytingar og framlengingu á fyrri kjarasamningi. Samkomulagið er að öllu leyti sambærilegt því samkomulagi sem félagið gerði við Reykjavíkurborg fyrr í sumar, þar sem verið er að tryggja hækkanir lægstu launa. Samningurinn gildir frá 31. ágúst 2009 til 30. nóvember 2010.

Kynningafundir voru haldnir í síðustu viku, og lauk atkvæðagreiðslu föstudaginn 21. ágúst kl. 12.

Samningarnir voru samþykktir með 68 atkvæðum gegn 24.

Senda grein


Þjónustusími strætó 540 2700
Þetta vefsvæði byggir á Eplica