klukkan er 08:40


Fréttir

Ísland sigraði í ökuleikni vagnstjóra

19.6.2009

Ökuleikni strætisvagnabílstjóra á norðurlöndum fór fram laugardaginn 13. júní að Hesthálsi 14. Vagnstjórar frá Íslandi, Svíþjóð, Finnlandi, Danmörku og Noregi kepptu í ýmsum akstursþrautum og var árangur metinn út frá bestum tíma með sem fæstum refsistigum.

Okuleikni2009_vinningslidid

Íslenska sigurliðið

Í efstu þremur sætunum voru Timo Kettunen frá Finnlandi, Þórarinn Söebech frá Íslandi og John Ekholm frá Svíþjóð. Fimm af tíu efstu keppendunum voru frá Íslandi og sigraði hópurinn nokkuð örugglega sem lið. Einstaklingsúrslit – efstu sætin:

 Timo Kettunen Finnland Finnland    1. sæti   1.486 stig 
 Þórarinn Söebech Ísland    2. sæti  1.763 stig 
 John Ekholm Svíþjóð   3. sæti  1.843 stig 
 Kjartan Pálmarsson  Ísland    4. sæti  1.887 stig 
 Elías Viggó Bíldal Ísland    5. sæti 1.984 stig
 Sigurjón Guðnason Ísland    6. sæti 2.015 stig 
 Pertti Siiskonen Finnland    7. sæti 2.132 stig 
 Nevrus Sabanovski Danmörk    8. sæti 2.191 stig 
 Róbert Daði Helgason Ísland    9. sæti 2.228 stig 
 Henrik Bögeskov Danmörk  10. sæti 2.234 stig 

 

Besta liðið:

Ísland 1. sæti   Stigafjöldi: 12.856   
Finnland   2. sæti   Stigafjöldi: 14.178  
Svíþjóð 3. sæti  Stigafjöldi: 16.078  
Noregur  4. sæti  Stigafjöldi: 17.665  

Danmörk var ekki með nógu marga keppendur til að skilgreinast sem lið.

Þátttakendur voru sammála um að einstaklega vel hafi verið staðið að undirbúningi og framkvæmd keppninnar í ár. Á næsta ári verður ökuleikni stætisvagnabílstjóra haldin í Finnlandi.

Senda grein


Þjónustusími strætó 540 2700
Þetta vefsvæði byggir á Eplica