klukkan er 08:26


Fréttir

Endurfjármögnun Strætó bs.

Nemaverkefni haldið áfram með breyttu sniði og ný stefnumótun til fimm ára

15.6.2009

 

Stjórn Strætó bs. samþykkti í dag tillögu um endurskipulagningu sem miðar að því að leysa úr erfiðri rekstrarstöðu Strætó og tryggja áframhaldandi grunnþjónustu. Í þessu felst m.a. að eigendur Strætó, sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu, yfirtaka hluta af langtímalánum Strætó bs. Jafnframt verður unnið að því að hækka á næstu fimm árum hlutfall fargjalda af heildartekjum Strætó bs. til samræmis við það sem tíðkast í nágrannalöndum.

Það er mat stjórnar Strætó bs. að endurskipulagningin feli í sér skynsamlega og raunhæfa lausn á núverandi fjárhagsstöðu og veiti jafnframt nýtt tækifæri til uppbyggingar á rekstri og þjónustu. Með þessum aðgerðum náist jafnvægi í rekstri og hægt verði að byggja upp ásættanlegt eiginfjár- og veltufjárhlutfall á næstu fimm árum. Lánin sem um ræðir nema alls um 435 milljónum króna og verða yfirtekin af sveitarfélögunum sem að Strætó standa í hlutfalli af íbúatölu í árslok 2008. Þær kvaðir fylgja yfirtökunni að Strætó verður ekki heimilt að taka ný lán vegna rekstrar eða fjárfestinga.

Stjórn Strætó bs. samþykkti jafnframt á fundi sínum í dag nýja þjónustustefnu byggðasamlagsins sem er hluti af heildarstefnumótun fyrir félagið. Þetta er í fyrsta sinn frá stofnun Strætó bs. sem mótuð er sameiginleg stefna sveitarfélaganna um strætósamgöngur.

Þar hafa verið skilgreind þjónustumarkmið sem taka meðal annars til leiðakerfis, þjónustutíðni, akstursleiða, leiðakerfisbreytinga auk þess sem markmið hafa verið sett um áreiðanleika, stundvísi og þægindi fyrir farþega. Þjónustustefnuna má nálgast á www.strætó.is.  

Jafnframt var samþykkt að nemaverkefninu verði framhaldið með þeim hætti að hlutur hvers nemanda verður nú 15.000 krónur fyrir allan veturinn, en jafnframt mun verða boðið upp á að kaupa annarkort. Þar með greiða nemendur aðeins um helming af hagkvæmasta fargjaldakosti Strætó, bláa kortinu, sem veitir 75% afslátt af grunngjaldi.

„Strætósamgöngur hafa sjaldan verið mikilvægari en nú og því er það afar jákvætt að sveitarfélögin hafi náð saman um þessar aðgerðir. Þær eru ekki sársaukalausar, en sýna einbeittan vilja okkar sem að Strætó bs. stöndum til að standa vörð um þjónustuna og tryggja til framtíðar að við getum aukið hana eftir þörfum,“ segir Jórunn Frímannsdóttir, stjórnarformaður Strætó bs.

„Þetta er mikilvægt skref fyrir Strætó sem þýðir að við höfum fast land undir fótum og getum hafið uppbyggingu. Nú munum við loksins geta einbeitt okkur að rekstrinum og þróun þjónustunnar þannig að hún nýtist sem flestum á eins hagkvæman hátt og kostur er,“ segir Reynir Jónsson, framkvæmdastjóri Strætó bs.

Senda grein


Þjónustusími strætó 540 2700
Þetta vefsvæði byggir á Eplica