VÍS námskeið fyrir vagnstjóra

Fyrir stuttu hélt VÍS námskeið í höfuðstöðvum sínum í Ármúlanum fyrir vagnstjóra hjá Strætó bs. Þátttakendur voru blanda af nýliðum og reyndum vagnstjórum sem hafa mismunandi reynslu í akstri hjá Strætó. Auk þeirra voru fulltrúar frá verkstæði, varðstjórum og stjórnendum Strætó.
Á námskeiðinu var fjallað um tegund ökutækjatjóna og slysa hjá Strætó og þann kostnað sem myndaast vegna þeirra. Sömuleiðis var farið yfir hvernig hægt er að efla öryggi í akstri strætó og voru fengnar tillögur frá þátttakendum um hvaða viðhorf, hegðun og þættir hjá vagnstjórum geti stuðlað að öruggari akstri.
Ágúst Mogensen frá Rannsóknarnefnd umferðaslysa fór yfir helstu orsakir slysa á farþegum og afleiðingar strætó- og rútubílaslysa.
Þetta námskeið er liður í forvarnarsamstarfi VÍS og Strætós.
