Þjónustuaðlögun hjá Strætó frá 1. febrúar
Breytingar á flestum leiðum utan annatíma
Þann 1. febrúar næstkomandi verða breytingar á aksturstíðni á flestum leiðum Strætó bs. Breytingarnar eru í samræmi við stefnu Strætó bs. og miðast að því að laga þjónustu að eftirspurn á annatímum, þ.e. morgna og síðdegis, en um leið að draga úr ferðatíðni um miðjan dag, á kvöldin og um helgar. Fargjöld munu hinsvegar ekki hækka.
Þjónustuaðlögunin er viðbrögð Strætó bs. við afar erfiðum rekstraraðstæðum í kjölfar gengisfalls krónunnar og kostnaðarhækkana í kjölfar þess. Stjórn Strætó bs. ákvað í nóvember sl. að sveitarfélögin sem að Strætó standa auki á þessu ári framlög sín til byggðasamlagsins, en jafnframt var nauðsynlegt að minnka rekstrarkostnað. Í þeirri erfiðu stöðu sem upp var komin þótti þessi aðferðafræði, að standa vörð um þjónustu á annatímum þegar flestir ferðast með strætó, en fækka ferðum þegar eftirspurn er minni, þjóna hagsmunum farþega best.
Breytingarnar eru gerðar með hliðsjón af ítarlegum rannsóknum Strætó bs. á farþegafjölda og nýtingu strætóleiða. Þannig er dregið mest úr þjónustu á þeim tímum þegar farþegar eru fáir, en minna þegar nýting er meiri. Á leiðum 1 og 6, sem flytja flesta farþega dag hvern, verða t.a.m. engar breytingar að því undanskildu að akstur hefst tveimur tímum síðar en áður á sunnudagsmorgnum.
Helstu breytingarnar eru að allar helstu leiðir, að leiðum 1 og 6 undanskildum, munu aka á hálftíma fresti utan annatíma virka daga og leiðir 21, 22, 33, 34, 35 og 36 á klukkutíma fresti. Jafnframt munu leiðir 2, 4, 5, 11, 12, 13, 14, 15, 18, 19, 24 og 28 aka á klukkutíma fresti á kvöldin og um helgar. Þjónustutími Strætó mun ekki styttast að öðru leyti en því að akstur mun hefjast tveimur tímum síðar en verið hefur á öllum leiðum á sunnudögum og helgidögum. Vagnar munu áfram aka fram undir miðnætti.
Að auki verða sértækar breytingar á nokkrum leiðum. Leið 4 ekur einungis milli Hamraborgar og Breiðholts utan dagtíma, leið 17 mun einungis aka á dagtíma á virkum dögum og milli kl. 12:00 og 19:00 á laugardögum, leið 23 (Álftanes) mun eingöngu aka á annatímum og leiðir 31 og 32 munu eingöngu aka á klukkutíma fresti. Nýjar tímatöflur og nánari upplýsingar um breytingarnar hafa verið birtar á strætó.is og eru farþegar hvattir til að kynna sér þær.
„Það er að sjálfsögðu ekki óskastaða að þurfa að draga úr þjónustu nú þegar notkun fólks á strætó hefur aukist jafnt og þétt síðustu misserin. Við teljum engu að síður, í ljósi þeirrar erfiðu stöðu sem við stóðum frammi fyrir í rekstri Strætó, að við höfum valið besta kostinn sem í boði var. Langstærsti hluti farþega okkar tekur strætó á morgnana og síðdegis og því leggjum við allt kapp á að halda þjónustustigi eins háu á þessum tímum og mögulegt er og þannig tryggja að sem fæstir verði fyrir óþægindum vegna þessara breytinga,“ segir Reynir Jónsson, framkvæmdastjóri Strætó bs.
Nánari upplýsingar um tímaáætlanir má finna í eftirfarandi skjölum:
Heildarleiðabók frá 1. febrúar (stórt skjal)
