Breytingar á tímatöflum
Sunnudaginn 1. febrúar 2009 munu tímatöflur breytast á nánast öllum leiðum hjá Strætó bs.
Við biðjum farþega að kynna sér breytingarnar hér að neðan og í leiðabók.
Heildaryfirsýn breytinga:
1. Allar helstu leiðir, (nema 1 og 6), munu aka á hálftíma fresti utan annatíma.
2. Leið 4 ekur óbreytt á dagtíma, virka daga, en utan þess tíma ekur hún einungis milli Hamraborgar og Breiðholts. Leið 4 ekur á klukkutíma fresti á kvöldin og um helgar.
3. Leiðir 2, 5, 11, 12, 13, 14, 15, 18, 19, 24 og 28 aka á klukkutíma fresti á kvöldin og um helgar.
4. Leiðir 21, 22, 33, 34, 35 og 36 aka á klukkutíma fresti utan annatíma virkra daga.
5. Leið 23 (Álftanes) mun eingöngu aka á annatímum.
6. Leið 17 mun eingöngu aka á dagtíma á virkum dögum og milli kl. 12:00 og 19:00 á laugardögum. Akstur á öðrum tímum fellur niður.
7. Leiðir 31 og 32 í Grafarvogi munu aka á klukkustundar fresti.
8. Allar leiðar byrja akstur tveimur tímum seinna á sunnu- og helgidögum.
9. Leiðir 1, 6, 25, 27 (Mosfellsdalur), 51, 57 og 58 breytast ekkert 1. febrúar nk.
Nánari upplýsingar er að finna í leiðabókum varðandi breytingarnar, s.s. hvenær stakar leiðir skipta yfir á kvöldtíðni o.s.frv.
Nýjar leiðabækur eru aðgengilegar á rafrænu formi hér að neðan og verður dreift í prentuðu formi innan fárra daga.
Athugið:
Strætó bs. tilkynnir þessar breytingar með fyrirvara um villur og áskilur sér fullan rétt til frekari breytinga.
Heildarleiðabók frá 1. febrúar (stórt skjal)
Leiðir 11 - 19 (grænar leiðir)
