Akstur í Mosfellsdal hafinn á ný
Leið 27 - nánari upplýsingar og tímatafla.
Frá og með mánudeginum 19. janúar 2009 hófst á ný akstur Strætó í Mosfellsdal. Sú nýbreytni verður að hefðbundnar leigubifreiðar munu annast aksturinn og sætafjöldi getur því verið takmarkaður í hverri ferð. Þjónustan verður án endurgjalds til að byrja með.
Í upphafi mun aksturinn verða skv. áður gildandi áætlun og tímatöflu (sjá meðfylgjandi) og leigubifreiðarnar munu á allra næstu dögum þar á eftir verða auðkenndar með leiðarnúmerinu 27 með vísan í það leiðarnúmer sem áður var, sem og S-merki Strætó bs.
Fyrirhugað er að endurskoða akstur í Dalinn vegna þess hve fáir farþegar nýta sér þjónustuna en kostnaður er mikill. Breytingar þessar verða útfærðar í samstarfi við Mosfellsbæ, jafnvel með samnýtingu skólabílsins, og markmiðið er að ná fram hagræðingu og lækka útgjöld Mosfellsbæjar, án þess að slegið sé af þjónustunni.
Við biðjum íbúa Mosfellsdals velvirðingar á því hve snögglega akstri var hætt um sl. áramót. Ástæðan er að sveitarfélögin þrjú á Vesturlandi – Akranes, Hvalfjarðarsveit og Borgarbyggð – tóku við rekstri leiðar 27 með afar skömmum fyrirvara og breytt akstursáætlun vagnsins leyfði ekki lengur akstur í Mosfellsdal.
Nánari upplýsingar um breytt fyrirkomulag aksturs verða veittar með góðum fyrirvara þegar að því kemur.
Smellið hér til að sækja tímatöflu leiðar 27 í Mosfellsdal.
