klukkan er 09:14


Fréttir

Fyrir íbúa Akraness, Hvalfjarðarsveitar, Borgarbyggðar, Hveragerðis og Árborgar

20.12.2008

Frítt verður í strætó til Akraness, Hvalfjarðarsveitar, Borgarness, Hveragerðis og Selfoss til og með11. janúar. Þeir sem kaupa persónulegt kort fyrir miðnætti þann 11. janúar fá auk þess tvær  aukavikur í gildistíma á kortin sín.

Það er því til mikils að vinna fyrir íbúa þessara svæða að byrja strax að nota strætó og  kaupa sér persónulegt kort tímanlega - frítt í strætó í allt þrjár og hálfa viku.

Athugið þeir sem þegar hafa  keypt persónulegt kort fá það  sent til sín með leiðréttum dagsetningum og þeir sem  keypt hafa handhafakort eiga þess kost á að fá persónulegt kort í staðinn.

Senda grein


Þjónustusími strætó 540 2700
Þetta vefsvæði byggir á Eplica