Strætó á Vesturlandi
Strætó bs. hefur akstur milli Reykjavíkur, Akraness, Hvalfjarðarsveitar og Borgarness. Aksturinn hefst 2. janúar næstkomandi. Á virkum dögum verða eknar átta ferðir til og frá Borgarnesi og ellefu til og frá Akranesi. Á laugardögum verða eknar fjórar ferðir til og frá Borgarnesi og sjö til og frá Akranesi. Á sunnudögum verða eknar þrjár ferðir til og frá Borgarnesi og fimm til og frá Akranesi. Þessi nýjung gerir íbúum svæðisins kleift að fara ferða sinna á þægilegan og ódýran hátt.
Opnaðu bæklinginn hér að neðan og kynntu þér hvernig gjaldskráin er fyrir Vesturland.
Viðbót 16. janúar 2009: Vinsamlegast athugið að tímatöflu sem birtist í bæklingnum hefur verið breytt. Nýja tímatöflu er hægt að nálgast hér að neðan.
