Strætóferðir til Árborgar og Hveragerðis hefjast eftir áramót
Fulltrúar Strætó bs. og bæjarstjórna Árborgar og Hveragerðis skrifuðu í morgun undir samninga um akstur Strætó milli bæjarfélaganna og höfuðborgarsvæðisins. Aksturinn hefst 2. janúar næstkomandi og verða farnar ellefu ferðir daglega fram og til baka á virkum dögum, sex á laugardögum og fimm á sunnudögum.
Markmiðið með akstrinum er að tengja betur saman höfuðborgarsvæðið og nágrannasveitarfélögin og auðvelda íbúum að stunda vinnu, nám og sækja þjónustu milli sveitarfélaganna með sem hagkvæmustum hætti. Ferðum yfir Hellisheiði mun fjölga frá því sem hefur verið og fargjöld verða lægri, sér í lagi fyrir þá sem nýta sér þjónustuna reglulega.
Það voru Reynir Jónsson, framkvæmdastjóri Strætó, Ragnheiður Hergeirsdóttir, bæjarstjóri Árborgar og Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri Hveragerðisbæjar, sem skrifuðu undir samninginn í strætisvagni sem heimsótti bæjarfélögin af þessu tilefni. Um leið var kynnt nýtt fargjaldafyrirkomulag sem tekið verður í notkun þegar aksturinn hefst. Það byggir á fjórum fargjaldasvæðum, þar sem svæði 1 er núverandi áætlanakerfi innan höfuðborgarsvæðisins, svæði 2 er kragi í kringum höfuðborgarsvæðið, Hveragerði er á svæði 3 og Selfoss á svæði 4.
Grunnfargjald í strætó verður áfram það sama, 280 krónur, en kostnaður við hverja ferð hækkar sem nemur einu grunnfargjaldi fyrir hvert gjaldsvæði sem keyrt er um. Afsláttarkort verða í boði sem gilda í allt frá tveimur vikum upp í níu mánuði, svipað og á höfuðborgarsvæðinu. Með notkun slíkra korta geta þeir sem ferðast fimm sinnum í viku fram og til baka milli gjaldsvæða 1 og 4 greitt allt niður í 323 krónur fyrir hverja ferð að jafnaði. Börn, ungmenni, aldraðir og öryrkjar fá jafnframt sérstakan afslátt. Hægt verður að kaupa miða og kort á skrifstofum sveitarfélaganna. Upplýsingar um leiðakerfið og miðakaup verður að finna á www.straeto.is.
„Það er okkur sönn ánægja að taka þátt í þessu tímamótaverkefni með bæjarstjórnum Árborgar og Hveragerðis. Með tíðari ferðum, lægri gjaldskrá og beintengingu við strætisvagnakerfi höfuðborgarinnar opnum við kraftmikla lífæð milli þessara stóru byggðarkjarna og höfuðborgarinnar. Þar með gerum við bæði regluleg ferðalög til Reykjavíkur, t.d. fyrir þá sem stunda þar vinnu eða nám, einfaldari og hagkvæmari en nokkru sinni fyrr og aukum möguleika höfuðborgarbúa og ferðamanna til að heimsækja Suðurland,“ segir Reynir Jónsson, framkvæmdastjóri Strætó.
„Verkefnið með Strætó er eitt stærsta framfaraspor í samgöngumálum sveitarfélagsins í langan tíma. Hér er um að ræða mikið hagsmunamál fyrir íbúana en mikil eftirvænting hefur ríkt meðal þeirra ef marka má fjölda fyrirspurna til okkar í sambandi við þennan samning. Þess vegna er afar gleðilegt fyrir okkur að geta nú boðið strætóferðir milli Árborgar og höfuðborgarsvæðisins,“ segir Ragnheiður Hergeirsdóttir, bæjarstjóri Árborgar.
„Við erum afar ánægð með að strætisvagnaferðir muni hefjast milli Reykjavíkur og Hveragerðis. Íbúar fyrir austan fjall munu njóta tíðari og ódýrari ferða til og frá höfuðborgarsvæðinu auk þess sem farþegum verða tryggðar greiðar tengingar á öllu þjónustusvæði fyrirtækisins. Ég efast ekki um að íbúar taki þessari nýbreytni fagnandi. Þá má ekki gleyma að Strætó virkar í báðar áttir og að ferðaþjónusta hér mun vafalaust blómstra enn frekar,“ segir Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri Hveragerðisbæjar.