klukkan er 08:41


Fréttir

Erlendir nemar og nemakort

29.9.2008

Erlendir nemar verða að eiga lögheimili á höfuðborgarsvæðinu til að fá nemakort Strætó

Skráning í utangarðsskrá ekki nægileg

Reykjavík, 29. september 2008

 

Erlendir nemar á höfuðborgarsvæðinu sem óska eftir því að fá nemakort Strætó verða að eiga lögheimili í þeim sveitarfélögum sem standa að nemakortunum. Þessi sveitarfélög eru Reykjavík, Kópavogur, Hafnarfjörður, Garðabær, Seltjarnarnes, Mosfellsbær og Álftanes auk þeirra sveitarfélaga utan höfuðborgarsvæðisins sem hafa óskað eftir því að taka þátt í verkefninu. Ekki er nægilegt að hafa eingöngu skráð aðsetur í þessum sveitarfélögum.

Áður hafði verið talið að þeir erlendu nemar sem skráðir eru á svokallaða „utangarðsskrá“ ættu lögheimili hér á landi og gætu því sótt um nemakortið. Þetta reyndist rangt því á utangarðsskrá eru einungis útlendingar sem skráðir eru tímabundið með aðsetur á Íslandi án þess að þeir flytji lögheimili sitt til landsins. Reglur Strætó bs. um nemakortin eru skýrar: Einungis þeir nemar sem eiga lögheimili í áðurnefndum sveitarfélögum geta sótt um nemakort. Því hefur verið lokað fyrir umsóknir erlendra nema sem skráðir eru á utangarðsskrá.

Um umsóknir erlendra nema um nemakort hefur verið fjallað í fjölmiðlum, m.a. í Fréttablaðinu 22. september. Þá hafði umræddur misskilningur um eðli utangarðsskrárinnnar ekki verið leiðréttur. Stjórnendur Strætó bs. harma að þessi misskilningur hafi orðið og valdið því að erlendir nemendur án lögheimilis á Íslandi hafi talið sig geta sótt um nemakortin.



Senda grein


Þjónustusími strætó 540 2700
Þetta vefsvæði byggir á Eplica