klukkan er 09:09


Fréttir

Breytingar á akstri vegna handboltahátíðar

27.8.2008

Vegna dagskrárhandboltahátíða í miðbænum verður akstri breytt á sjö strætóleiðum miðvikudaginn 27. ágúst. Breytingarnar munu gilda milli kl. 16:00 og 19:30 á leiðum 1, 3, 6, 11, 12 og 13, en milli kl. 10:00 og 19.30 á leið 14.

Leiðir 1, 3, 6, 11 og 12 - Milli kl. 16 og 19.30
Milli kl. 16:00 og 19:30 aka leiðir 1,3, 6, 11 og 12 frá Hlemmi suður Snorrabraut - gömlu Hringbraut - Sóleyjargötu - Fríkirkjuveg - Vonarstræti - Suðurgötu, og þaðan út í hverfi.

Að Hlemmi aka leiðir 1,3, 6, 11 og 12 Hringbraut - Suðurgötu - Skothúsveg - (biðstöð við Hljómskála) Sóleyjargötu - gömlu Hringbraut - Snorrabraut að Hlemmi.

Leið 13
Milli kl. 16:00 og 19:30 ekur leið 13 frá Hlemmi suður Snorrabraut - gömlu Hringbraut - Sóleyjargötu - Fríkirkjuveg - Vonarstræti - Túngötu - Hofsvallagötu - Hringbraut og þaðan á leið út í hverfi.

Að Hlemmi ekur leiðin Hringbraut - Hofsvallagötu - Túngötu - Vonarstræti - Fríkirkjuveg - Sóleyjargötu - gömlu Hringbraut - Snorrabraut að Hlemmi.

Leið 14
Á milli kl. 10:00 og 19:30 verður Kalkofnsvegi lokað og því ekur leið 14 hefðbundna leið frá Hlemmi suður Snorrabraut - gömlu Hringbraut - Hringbraut - Suðurgötu - Skothúsveg - Fríkirkjuveg - Vonarstræti - Suðurgötu - Hringbraut - Ánanaust - að Grandagarði (endastöð).

Að Hlemmi ekur leiðin frá Grandagarði - Ánanaust, Hringbraut - gömlu Hringbraut - Snorrabraut að Hlemmi.



Senda grein


Þjónustusími strætó 540 2700
Þetta vefsvæði byggir á Eplica