klukkan er 08:15


Fréttir

Akstur Strætó á Menningarnótt

22.8.2008

LOKAÐAR GÖTUR ALLAN DAGINN

Vegna maraþonshlaups munu eftirfarandi götur lokast alfarið frá morgni til miðnættis: Sæbraut (milli Lækjargötu og Kringlumýrarbrautar) – Geirsgata - Mýrargata – Hverfisgata – Lækjargata.

LOKAÐAR GÖTUR KL. 06:45 – 13.00

Frá kl. 06:45–kl. 13:00 lokast einnig Vonarstræti – Fríkirkjuvegur og Skothúsvegur. Það er því ekki mögulegt að komast með strætó í sjálfan miðbæinn. Á þessum tíma aka vagnar á leið að miðbæ frá Hlemmi um Snorrabraut og Hringbraut að Melatorgi og snúa þar við á leið út í hverfi. Sami háttur er þegar ekið er frá hverfum að Hlemmi, þá er tekinn snúningur á Melatorgi.

Vagnar aka venjulega leið um Vesturbæ en aka ofannefnda leið að og frá Hlemmi.

EFTIR KL. 13:00 VERÐUR BREYTING

Þá munu vagnar á leið út í hverfi frá Hlemmi aka af Hringbraut um Sóleyjargötu, Fríkirkjuveg, Vonarstræti, Suðurgötu og aftur að Hringbraut.

Á sama hátt munu vagnar sem eru á leið að Hlemmi aka um Skothúsveg, Sóleyjargötu, Hringbraut og Snorrabraut.

Leið 14:

Mun aka um Ánanaust og Hringbraut í báðar áttir.

Leiðar 5 og 12:

Munu aka hefðbundnar leiðir um Sæbraut og Kleppsveg að og frá Hlemmi.

Síðustu ferðir frá Hlemmi og Vonarstræti; um kl. 01:00

Senda grein


Þjónustusími strætó 540 2700
Þetta vefsvæði byggir á Eplica