klukkan er 09:29


Fréttir

Ný strætókort

Sumarkort og kort fyrir ferðamenn

6.6.2008

Fimmtudaginn 5. júní, hófst sala á nýjum sumarkortum. Kortin eru með föstum gildistíma, sem er 31. ágúst 2008.

Markhópurinn er fyrst og fremst námsmenn, þar sem ætlunin er að þeir geti brúað bilið á milli þess tíma sem námsmannakortin eru ekki í gildi. Allir geta þó keypt kortið og notað það á gildistímanum. Verðið á sumarkortinu er 9.000 kr.

Kortið lítur þannig út:

 sumarkortid

Einnig hófst sala á 2 ferðamannakortum. Þetta eru kort sem gilda í 1 eða 3 daga.

Textinn á kortunum er á ensku. Verðin er 600 kr. fyrir dagskortið og 1.500 kr. fyrir þriggja daga kort og líta þau svona út:

1day     3day



Senda grein


Þjónustusími strætó 540 2700
Þetta vefsvæði byggir á Eplica