klukkan er 09:03


Fréttir

Sumartími strætó og breyttar leiðir

í Breiðholti, Garðabæ, Grafarholti, Grafarvogi, Hafnarfirði og Kópavogi taka gildi 3. júní 2007.

1.6.2007

Af hverju breytingar?

  • Komið er til móts við óskir viðskiptavina um betri tengingar innan hverfa og minni bið á skiptistöðvum.

              Til þess að þetta sé hægt verður allt leiðakerfið að byggja á sömu grunntíðni
                – sem hefur verið ákveðin 30 mínútur
og þannig munu allir vagnar aka í sumar.


               Með vetraráætlun sem hefst þann 19. ágúst n.k. munu hins
vegar helstu 
               leiðir aka á 15 mínútna fresti.

  • Farþegum fækkar um 40-45% á sumrin m.a. vegna skólaleyfa og sumarfría.
  • Erfitt er að fá afleysingarfólk til starfa yfir sumarið.
  • Breytingar byggja á talningu ferða eftir leiðum.

              Samráð hefur verið haft við fulltrúa hverfa og sveitarfélaga varðandi breytingarnar.

  • Breytingar spara rekstrarkostnað.
       Sem er í samræmi við óskir eigenda Strætó bs.

Sumartími strætó – breytt tíðni leiða

Gildir frá 3. júní til 18. ágúst 2007

Allar leiðir Strætó, nema leið 23 og leið 27, aka á 30 mínútna fresti frá og með 3. júní.

Leið 23 ekur á 60 mínútna fresti og leið 27 ekur á breytilegri tíðni. Sjá nánar hér

Breytingar hafa verið gerðar á leiðum í Breiðholti, Garðabæ, Grafarholti, Grafarvogi, Hafnarfirði og Kópavogi

Gilda frá 3. júní 2007

Komið er til móts við óskir viðskiptavina um betri tengingar innan hverfa.

Leið 16 er lögð niður, en þar á móti koma tvær nýjar hringleiðir leið 31 og 32, sem þjóna innanhverfis í Grafarvogi og leið 5, sem þjónar Árbæ, ekur um Sæbraut að Hlemmi.

Leið 25 og 26 í Kópavogi, eru lagðar niður í núverandi mynd en leiðir 35 og 36, taka við hlutverki þeirra þar sem innabæjartengingin er bætt.

Leið 21 í Hafnarfirði verður lögð niður, en leiðir 33 og 34 koma í staðinn, þar sem innanbæjartenging verður bætt verulega.

  • Með breytingunum fjölgar leiðum um tvær.
  • Skiptistöðvarnar í Mjódd, Hamraborg, Ártúni, Firði og Spöng nýtast betur til skiptinga hjá farþegum með samræmdri tímasetningu vagna.
  • Biðtíminn styttist með tilkomu nýrra leiða, betri tengingu í hverfunum og bættri þjónustu á skiptistöðvum.

 

 

Breytingar í Breiðholti:

Leið 3 ekur frá Mjódd um Skógarsel, Hólmasel, Jaðarsel, Suðurfell, Vesturberg, Austurberg, að Fellaskóla, Jaðarsel, Hólmasel og Skógarsel að Mjódd.

Leið 4 tengir nú Mjódd og Hamraborg.
Ekur frá Mjódd um Arnarbakka, Norðurhóla, Suðurhóla, Austurberg, að Fellaskóla
og sömu leið til baka.

Leið 4 ekur einnig um Borgartún að Hlemmi og sömu leið til baka.

Leið 12 ekur um Seljabraut og tengist FB og Gerðubergi í báðar áttir.

Leið 17 ekur um Vesturberg, Norðurfell, Austurberg, Suðurhóla og Arnarbakka.
Ekur ekki í Hólahverfi. Í staðinn ekur leið 4 um Hólahverfi í báðar áttir.

 

Breytingar í Garðabæ:

Leið 22 styttist og ekur frá Firði á nýja endastöð við IKEA, í stað Ásgarðs.
Ekur nú í Vallarhverfi eftir Hringbraut í Hafnarfirði.

Leið 23 ekur á klukkutíma fresti út á Álftanes og tengir einnig Arnarnes og Ásgarð.

 

Breytingar í Grafarholti:

Leið 18 þjónar Grafarholti sem fyrr, en þjónusta er aukin með tengingu milli Grafarholts og Grafarvogs. Þá ekur leið 18 um Hálsabraut, Bæjarbraut og Rofabæ á leið sinni að og frá miðborg.

 

Breytingar í Grafarvogi:

Leið 16 er lögð niður.

Leið 18 byrjar í Spöng í staðinn fyrir í Grafarholti áður og ekur frá Spöng um Langarima, Hallsveg, Gagnveg, Víkurveg og Reynisvatnsveg.

Leið 24 ekur frá nýrri endastöð í Spöng um Langarima, Hallsveg og Fjallkonuveg að Gullinbrú.

Leið 31 er ný hringleið með endastöð í Spöng og ekur frá Spöng, um Borgir, Hamravík, að Bakkastöðum, að Egilshöll, Borgarveg, Langarima, Fjallkonuveg, Hesthamra og Strandveg að Spöng.

Leið 32 er ný hringleið með endastöð í Spöng og ekur frá Spöng um Strandveg, Hesthamra, Fjallkonuveg, Langarima, Borgarveg, að Egilshöll, að Bakkastöðum, Hamravík og Borgir að Spöng.

 

Breytingar í Hafnarfirði:

Leið 1 styttist og ekur á milli Hlemms og Fjarðar.
Ekur ekki í Vallarhverfi. Í staðinn ekur leið 22 í Vallarhverfi. 

Leið 21 er lögð niður. 

Leið 22 styttist og ekur frá Firði á nýja endastöð við IKEA, í stað Ásgarðs.
Ekur í Vallarhverfi eftir Hringbraut í Hafnarfirði.

Leið 33 er ný hringleið með endastöð í Firði og ekur frá Firði um Hvaleyrarbraut, Háholt, Suðurbraut, Vörðutorg, Reykjanesbraut, Setberg, Álfaskeið og Reykjavíkurveg að Firði. 

Leið 34 er ný hringleið með endastöð í Firði og ekur frá Firði um Reykjavíkurveg, Álfaskeið, Setberg, Reykjanesbraut, Vörðutorg, Suðurbraut, Háholt og Hvaleyrarbraut að Firði.

 

Breytingar í Kópavogi:

Leið 4 tengir nú Mjódd og Hamraborg.
Ekur um Digranesveg, Bröttubrekku og Túnbrekku að Nýbýlavegi.

Leið 4 ekur einnig um Kringlumýrarbraut og Borgartún að Hlemmi og sömu leið til baka.

Leið 28 ekur frá Hamraborg um Álfhólsveg, Álfaheiði, Hlíðarhjalla og Dalveg.
Ekur einnig frá Kóravegi um Baugakór og Vatnsendaveg.

Leið 35 er ný hringleið með endastöð í Hamraborg og ekur frá Hamraborg um Kópavogsbraut, Kársnesbraut, Nýbýlaveg, Engihjalla, Álfhólsveg, Skálaheiði, Hlíðarhjalla og Hlíðarveg að Hamraborg.

Leið 36 er ný hringleið með endastöð í Hamraborg og ekur frá Hamraborg um Hlíðarhjalla, Hlíðarveg, Skálaheiði, Álfhólsveg, Engihjalla, Nýbýlaveg, Kársnesbraut, Kópavogsbraut, Urðarbraut og Borgarholtsbraut að Hamraborg.

Senda grein


Þjónustusími strætó 540 2700
Þetta vefsvæði byggir á Eplica